Judges 6:13 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá sagði Gídeon við hann: “Æ, herra minn, ef Drottinn er með oss, hví hefir þá allt þetta oss að hendi borið? Og hvar eru öll dásemdarverk hans, þau er feður vorir hafa skýrt oss frá, segjandi: ‘Já, Drottinn leiddi oss út af Egyptalandi!’ En nú hefir Drottinn hafnað oss og gefið oss í hendur Midíans.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þá sagði Gídeon við hann: „Ó, herra minn, sé Drottinn með okkur, hví hefur þá allt þetta yfir okkur gengið? Og hvar eru öll dásemdarverk hans sem feður okkar hafa skýrt frá og sagt: Leiddi Drottinn okkur ekki út af Egyptalandi? En nú hefur Drottinn hafnað okkur og selt í hendur Midíans.“