Judges 7:24 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Gídeon hafði og sent sendimenn um öll Efraímfjöll og látið segja: “Farið ofan í móti Midían og varnið þeim yfirferðar yfir árnar allt til Bet Bara og yfir Jórdan.” Þá var öllum Efraímítum stefnt saman, og þeir vörnuðu þeim yfirferðar yfir árnar allt til Bet Bara og yfir Jórdan.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Gídeon hafði einnig sent sendimenn um öll Efraímsfjöll og látið segja: „Farið niður til móts við Midían og varnið þeim yfirferðar yfir Jórdan allt til Bet Bara.“ Þá var öllum Efraímítum stefnt saman og þeir vörnuðu þeim yfirferðar við Jórdan allt til Bet Bara.