Judges 9:15 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En þyrnirinn sagði við trén: Ef það er alvara yðar að smyrja mig til konungs, þá komið og fáið yður skjól í skugga mínum. En ef svo er eigi, þá gangi eldur út frá þyrninum og eyði sedrustrjánum á Líbanon.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
En þyrnirinn sagði við trén: Ef það er alvara ykkar að smyrja mig til konungs, komið þá og fáið ykkur skjól í skugga mínum. En sé ekki svo þá gangi eldur út frá þyrninum og eyði sedrustrjánum á Líbanon.