Lamentations 2:16 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Yfir þér glenntu upp ginið allir óvinir þínir, blístruðu og nístu tönnum, sögðu: “Vér höfum gjöreytt hana! Já, eftir þessum degi höfum vér beðið, vér höfum lifað hann, vér höfum séð hann!”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Allir óvinir þínir glenna upp ginið gegn þér, fussa og gnísta tönnum og segja: „Vér höfum afmáð hana! Þetta er dagurinn langþráði, vér lifðum það að sjá hann!“