Lamentations 2:17 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Drottinn hefir framkvæmt það, er hann hafði ákveðið, efnt orð sín, þau er hann hefir boðið frá því forðum daga, hefir rifið niður vægðarlaust og látið óvinina fagna yfir þér, hann hóf horn fjenda þinna.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Drottinn hefur gert það sem hann ásetti sér, látið það rætast sem hann varaði við forðum daga. Vægðarlaust hefur hann rifið niður, látið óvinina hlakka yfir þér og hafið horn fjandmanna þinna.