Leviticus 10:1 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Nadab og Abíhú, synir Arons, tóku hvor sína eldpönnu og létu eld í þær og lögðu reykelsi ofan á og báru fram fyrir Drottin óvígðan eld, sem hann eigi hafði boðið þeim.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Einhverju sinni tóku þeir Nadab og Abíhú, synir Arons, hvor sína reykelsispönnuna, létu eld í og lögðu reykelsi ofan á og báru óhreinan eld fram fyrir auglit Drottins sem hann hafði ekki boðið þeim að gera.