Leviticus 10:6 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og Móse sagði við Aron og við Eleasar og Ítamar, sonu hans: “Þér skuluð eigi láta hár yðar flaka, eigi heldur sundur rífa klæði yðar, að þér ekki deyið og hann reiðist ekki öllum söfnuðinum. En bræður yðar, allur Ísraelslýður, gráti yfir þeim eldi, sem Drottinn hefir kveikt.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Móse sagði við Aron og syni hans, Eleasar og Ítamar: „Látið höfuðhár ykkar ekki hanga laust og þið skuluð ekki rífa klæði ykkar því að þá deyið þið og Drottinn mun reiðast öllum söfnuðinum. Ættbræður ykkar, allir Ísraelsmenn, skulu gráta það bál sem Drottinn hefur kveikt.