Leviticus 20:25 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Gjörið því grein hreinna ferfætlinga og óhreinna, og óhreinna fugla og hreinna, og gjörið yður eigi viðurstyggilega á skepnum, fuglum né neinu, sem hrærist á jörðinni, því sem ég hefi greint frá, til þess að það væri yður óhreint.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þið skuluð því gera greinarmun á hreinum dýrum og óhreinum og óhreinum fuglum og hreinum. Þið skuluð ekki gera ykkur sjálfa viðurstyggilega með því að snerta eitthvert þessara dýra, fugla eða kvikinda sem skríða á jörðinni og ég hef ykkar vegna aðgreint sem óhrein.