Leviticus 26:43 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og landið skal verða yfirgefið af þeim og fá hvíldarár sín bætt upp, meðan það er í eyði og þeir eru á brottu, og þeir skulu fá misgjörð sína bætta upp fyrir þá sök og vegna þess, að þeir höfnuðu lögum mínum og sál þeirra hafði óbeit á setningum mínum.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Landið mun losna við íbúa sína og njóta hvíldarára sinna á meðan það er laust við þá. En þeir verða að bæta að fullu fyrir brot sitt því að þeir höfnuðu réttarreglum mínum og þeim bauð við lögum mínum.