Malachi 1:13 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og þér segið: “Sjá, hvílík fyrirhöfn!” og fyrirlítið það, - segir Drottinn allsherjar -, og þér færið fram það sem rænt er og það sem halt er og það sem sjúkt er og færið það í fórn. Ætti ég að girnast slíkt af yðar hendi? - segir Drottinn.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þið segið: „Lítið á, hvílík fyrirhöfn,“ og þið blásið í eldinn, segir Drottinn hersveitanna. Þið berið stolið, halt og sýkt fram til fórnar. Á ég að gleðjast yfir þvílíku úr hendi ykkar? spyr Drottinn hersveitanna.