Malachi 1:4 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Ef Edómítar segja: “Vér höfum að vísu orðið fyrir eyðingu, en vér munum byggja upp aftur rofin!” þá segir Drottinn allsherjar svo: “Byggi þeir, en ég mun rífa niður, svo að menn munu kalla þá Glæpaland og Lýðinn sem Drottinn er eilíflega reiður.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Segi Edómítar: „Við höfum orðið fyrir eyðingu en við munum endurreisa rústirnar,“ þá segir Drottinn hersveitanna: Byggi þeir mun ég niður rífa uns þeir verða kenndir við land ranglætisins og nefndir þjóðin sem Drottinn er ævinlega reiður.