Malachi 3:1 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Sjá, ég sendi sendiboða minn, og hann mun greiða veginn fyrir mér. Og bráðlega mun hann koma til musteris síns, sá Drottinn er þér leitið, og engill sáttmálans, sá er þér þráið. Sjá, hann kemur - segir Drottinn allsherjar.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Sjá, ég sendi sendiboða minn, hann á að ryðja mér braut. Drottinn, sem þið leitið, kemur skyndilega til musteris síns og boðberi sáttmálans, sem þið þráið, hann kemur, segir Drottinn hersveitanna.