Malachi 3:5 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En ég mun nálægja mig yður til að halda dóm og mun skyndilega fram ganga sem vitni í gegn töframönnum, hórdómsmönnum og meinsærismönnum og í gegn þeim, sem hafa af daglaunamönnum, ekkjum og munaðarleysingjum og halla rétti útlendinga, en óttast mig ekki - segir Drottinn allsherjar.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Ég mun koma til ykkar og halda dómþing. Ég kem brátt og vitna gegn galdramönnum, hórkörlum og meinsærismönnum, gegn öllum sem halda launum fyrir daglaunamönnum, kúga ekkjur og munaðarleysingja og þjaka aðkomumenn og óttast mig ekki, segir Drottinn hersveitanna.