Nehemiah 1:9 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En þegar þér hverfið aftur til mín og varðveitið boðorð mín og breytið eftir þeim - þótt yðar brottreknu væru yst við skaut himinsins, þá mun ég saman safna þeim þaðan og leiða þá til þess staðar, er ég hefi valið til þess að láta nafn mitt búa þar.’
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
En ef þið snúið aftur til mín, varðveitið boðorð mín og breytið eftir þeim mun ég safna ykkur aftur saman, jafnvel þeim sem hraktir voru til endimarka himinsins, og flytja til þess staðar, sem ég hef valið, til þess að láta nafn mitt búa.