Nehemiah 12:44 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þennan sama dag voru skipaðir tilsjónarmenn yfir klefana, sem hafðir voru að forðabúrum fyrir fórnargjafir, frumgróðafórnir og tíundir, til þess að þangað væri safnað greiðslum þeim af ökrunum umhverfis borgirnar, er prestunum og levítunum báru eftir lögmálinu, því að Júda gladdist yfir prestunum og levítunum, þeim er þjónustu gegndu.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Um þessar mundir voru menn settir yfir geymsluherbergin sem ætluð voru fyrir afgjöld, framlög af frumgróða og tíundir. Framlögum til presta og Levíta af ökrum borganna, sem þeim voru ætluð samkvæmt lögmálinu, var safnað í þessi geymsluherbergi því að Júdamenn glöddust yfir prestunum og Levítunum sem gegndu guðsþjónustunni.