Nehemiah 13:18 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Hafa eigi feður yðar breytt svo og Guð vor þess vegna látið alla þessa ógæfu yfir oss dynja og yfir þessa borg? En þér aukið enn meir á reiði hans við Ísrael með því að vanhelga hvíldardaginn.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Var það ekki þetta sem feður ykkar gerðu svo að Guð okkar sendi þessa ógæfu yfir okkur og þessa borg? Nú ætlið þið að kalla enn meiri reiði yfir Ísrael með því að vanhelga hvíldardaginn.“