Nehemiah 5:15 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En hinir fyrri landstjórar, þeir er á undan mér voru, höfðu kúgað lýðinn og tekið af þeim fjörutíu sikla silfurs á dag fyrir brauði og víni. Auk þess höfðu sveinar þeirra drottnað yfir lýðnum. En ekki breytti ég þannig, því að ég óttaðist Guð.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Fyrri landstjórar, sem voru á undan mér, lögðu þungar álögur á fólkið. Þeir tóku af því fjörutíu sikla silfurs á dag fyrir mat og víni og menn þeirra kúguðu fólkið. En ég fór ekki þannig að af því að ég óttaðist Guð.