Numbers 11:16 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá sagði Drottinn við Móse: “Safna þú mér sjötíu mönnum af öldungum Ísraels, sem þú veist að eru öldungar meðal fólksins og tilsjónarmenn þess, og skalt þú fara með þá að samfundatjaldinu, svo að þeir skipi sér þar ásamt þér.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Drottinn sagði við Móse: „Veldu fyrir mig sjötíu menn úr hópi öldunga Ísraels sem þú veist að eru öldungar þjóðarinnar og eftirlitsmenn hennar. Þú skalt leiða þá að samfundatjaldinu og þar skulu þeir taka sér stöðu með þér.