Numbers 2:17 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá skal samfundatjaldið taka sig upp ásamt búðum levítanna, í miðjum hernum. Eins og þeir tjalda, svo skulu þeir taka sig upp, hver á sínum stað, eftir merkjum sínum.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Því næst skal haldið af stað með samfundatjaldið ásamt búðum Levíta sem skulu vera mitt á meðal hinna búðanna. Haldið skal af stað með þær í sömu röð og þeim var slegið upp, hverri á sínum ákveðna stað, undir gunnfána sínum.