Numbers 3:38 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Fyrir framan búðina, að austanverðu, fyrir framan samfundatjaldið, móti upprás sólar, tjölduðu þeir Móse og Aron og synir hans, og höfðu á hendi að annast helgidóminn, það er annast þurfti fyrir Ísraelsmenn. En komi óvígður maður þar nærri, skal hann líflátinn verða.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þeir sem áttu að tjalda við framhlið tjaldbúðarinnar, austan megin, við framhlið samfundatjaldsins, gegnt sólarupprás, voru Móse og Aron og synir hans. Þeir báru ábyrgð á þjónustunni í helgidóminum og voru í þjónustu Ísraelsmanna. Kæmi einhver óviðkomandi þar nærri var hann líflátinn.