Numbers 4:15 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Er þeir Aron og synir hans hafa lokið því að breiða yfir helgidóminn og öll áhöld helgidómsins, þá er herinn tekur sig upp, skulu Kahats synir þessu næst koma og bera. En eigi skulu þeir koma við helgidóminn, svo að þeir deyi ekki. Þetta er það, sem Kahats synir eiga að bera við samfundatjaldið.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar Aron og synir hans hafa lokið við að breiða yfir helgidóminn og öll áhöld helgidómsins, er herinn tekur sig upp, skulu synir Kahats koma og bera. En þeir mega ekki snerta helgidóminn því að þá munu þeir deyja. Þetta er það sem synir Kahats eiga að bera úr samfundatjaldinu.