Revelation 14:18 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og annar engill gekk út frá altarinu, hann hafði vald yfir eldinum. Hann kallaði hárri röddu til þess, sem hafði bitru sigðina: “Ber þú út bitru sigðina þína, og sker þrúgurnar af vínviði jarðarinnar, því að vínberin á honum eru orðin þroskuð.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Og enn annar engill gekk út frá altarinu og hafði vald yfir eldinum. Hann kallaði hárri röddu til þess sem hafði beittu sigðina: „Tak beittu sigðina þína og sker þrúgurnar af vínviði jarðarinnar því að vínberin á honum eru orðin þroskuð.“