Revelation 20:4 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og ég sá hásæti og menn settust í þau og dómsvald var þeim fengið, og ég sá sálir þeirra, sem hálshöggnir höfðu verið sakir vitnisburðar Jesú og sakir orðs Guðs. Það voru þeir hinir sömu sem höfðu ekki tilbeðið dýrið né líkneski þess og ekki fengið merki á enni sér og hönd. Og þeir lifnuðu og ríktu með Kristi um þúsund ár.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Og ég sá hásæti og menn settust í þau og þeim sem þar sátu var gefið vald til að dæma. Ég sá sálir þeirra sem höfðu verið hálshöggnir af því að þeir höfðu vitnað um Jesú og flutt orð Guðs. Það voru þeir sem höfðu hvorki tilbeðið dýrið né líkneski þess og ekki fengið merki á enni sér og hönd. Og þeir lifnuðu og ríktu með Kristi um þúsund ár.