Zechariah 13:3 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En ef nokkur kemur enn fram sem spámaður, þá munu faðir hans og móðir, hans eigin foreldrar, segja við hann: “Þú skalt eigi lífi halda, því að þú hefir talað lygi í nafni Drottins.” Og faðir hans og móðir, hans eigin foreldrar, munu leggja hann í gegn, þá er hann kemur fram sem spámaður.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Stundi þá enn einhver spámennsku munu foreldrar hans, faðir hans og móðir, segja: „Ekki skalt þú halda lífi er þú ferð með lygar í nafni Drottins.“ Og foreldrar hans, faðir hans og móðir, munu leggja hann í gegn ef hann stundar spámennsku.