Zechariah 14:5 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En þér munuð flýja í fjalldal minn, því að fjalldalurinn nær til Asal. Og þér munuð flýja, eins og þér flýðuð undan landskjálftanum á dögum Ússía Júdakonungs. En Drottinn, Guð minn, mun koma og allir heilagir með honum.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Og þið skuluð flýja í fjalldal minn, en dalurinn nær allt til Asal, flýja eins og þið flýðuð jarðskjálftann á dögum Ússía Júdakonungs. En Drottinn, Guð minn, mun koma og með honum allir heilagir.