bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Amos 7
Amos 7
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 6
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 8 →
1
Drottinn Guð lét þessa sýn bera fyrir mig: Það voru komnar engisprettulirfur, þá er háin tók til að spretta eftir konungsslátt.
2
En er þær höfðu gjöretið grasið af jörðinni, sagði ég: “Drottinn Guð, æ fyrirgef! Hversu má Jakob standast? Hann er svo vesall!”
3
Þá iðraði Drottin þessa. “Það skal ekki verða!” sagði Drottinn.
4
Drottinn Guð lét þessa sýn bera fyrir mig: Drottinn Guð kom til þess að hegna með eldi, og hann svalg hið mikla djúp og eyddi landið.
5
Þá sagði ég: “Æ, Drottinn Guð, lát af! Hversu má Jakob standast? Hann er svo vesall!”
6
Þá iðraði Drottin þessa. “Þetta skal ekki heldur verða!” sagði Drottinn.
7
Hann lét þessa sýn bera fyrir mig: Sjá, Drottinn stóð uppi á lóðréttum múrvegg og hélt á lóði.
8
Og Drottinn sagði við mig: “Hvað sér þú, Amos?” Ég svaraði: “Lóð.” Þá sagði Drottinn: “Sjá, ég mun lóð nota mitt á meðal lýðs míns Ísraels, ég vil eigi lengur umbera hann.
9
Hæðir Ísaks skulu í eyði lagðar verða og helgidómar Ísraels eyddir verða, og ég vil rísa gegn Jeróbóams ætt með reiddu sverði.”
10
Amasía prestur í Betel sendi boð til Jeróbóams Ísraelskonungs og lét segja: “Amos kveikir uppreisn gegn þér mitt í Ísraelsríki. Landið fær eigi þolað öll orð hans.
11
Því að svo hefir Amos sagt: ‘Jeróbóam mun fyrir sverði falla og Ísrael mun herleiddur verða burt úr landi sínu.’”
12
Síðan sagði Amasía við Amos: “Haf þig á burt, vitranamaður, flý til Júdalands! Afla þér þar viðurværis og spá þú þar!
13
En í Betel mátt þú eigi framar koma fram sem spámaður, því að hér er konunglegur helgidómur og ríkismusteri.”
14
Þá svaraði Amos og sagði við Amasía: “Ég er enginn spámaður, og ég er ekki af spámannaflokki, heldur er ég hjarðmaður og rækta mórber.
15
En Drottinn tók mig frá hjarðmennskunni og sagði við mig: ‘Far þú og spá þú hjá lýð mínum Ísrael.’
16
Og heyr því orð Drottins: Þú segir: ‘Þú mátt eigi spá gegn Ísrael né láta orð þín streyma yfir Ísaks niðja.’
17
Fyrir því segir Drottinn svo: ‘Konan þín skal verða skækja hér í borginni, og synir þínir og dætur skulu fyrir sverði falla. Jörð þinni skal sundur skipt verða með mælivað, og þú sjálfur skalt deyja í óhreinu landi. Og Ísraelsmenn skulu fara herleiddir af landi sínu.’”
← Chapter 6
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 8 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9