bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Ezekiel 26
Ezekiel 26
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 25
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 27 →
1
En á ellefta árinu, hinn fyrsta dag mánaðarins, kom orð Drottins til mín, svohljóðandi:
2
“Mannsson, af því að Týrus hlakkaði yfir Jerúsalem og sagði: ‘Nú er þjóðahliðið brotið upp, hefir opnast að mér, nú vil ég fylla mig, er hún er komin í auðn!’ -
3
fyrir því segir Drottinn Guð svo: Sjá, ég skal finna þig, Týrus, ég skal leiða í móti þér margar þjóðir, eins og þegar hafið lætur öldur sínar að streyma.
4
Þær skulu brjóta múra Týrusar og rífa niður turna hennar, og ég mun sjálfur sópa burt öllum jarðveg af henni og gjöra hana að berum kletti.
5
Hún skal verða að þerrireit fyrir fiskinet úti í hafinu, því að ég hefi talað það, - segir Drottinn Guð, - og hún skal verða þjóðunum að herfangi.
6
En dætur hennar, sem eru á landi, skulu drepnar verða með sverði, til þess að þær viðurkenni, að ég er Drottinn.
7
Því að svo segir Drottinn Guð: Sjá ég leiði Nebúkadresar konung í Babýlon, konung konunganna, gegn Týrus úr norðri, með hestum, vögnum, riddurum og mannsöfnuði margra þjóða.
8
Hann mun drepa dætur þínar á landi með sverði, hlaða víggarða gegn þér, hleypa upp jarðhrygg gegn þér og reisa skjöldu í móti þér.
9
Og hann mun hleypa víghrút sínum á múra þína og rífa niður turna þína með járntólum sínum.
10
Af mergð hesta hans munt þú hulin verða jóreyk, og múrar þínir munu gnötra af gný riddaranna, hjólanna og vagnanna, þegar hann fer inn um borgarhlið þín, eins og þegar farið er inn í hertekna borg.
11
Með hófum hesta sinna mun hann troða sundur öll stræti þín. Lýð þinn mun hann brytja niður með sverði, og þínar voldugu súlur munu hrapa til jarðar.
12
Og þeir munu ræna auð þínum og hrifsa burt kaupeyri þinn, brjóta niður borgarveggi þína, rífa niður þín dýrlegu hús og varpa á sjó út húsagrjótinu, viðunum og rofinu.
13
Ég skal lægja klið ljóða þinna, og hljómur harpna þinna skal ekki framar heyrast.
14
Og ég skal gjöra þig að berum kletti: Þú skalt verða að þerrireit fyrir fiskinet, þú skalt aldrei framar endurreist verða, því að ég, Drottinn, hefi talað það, - segir Drottinn Guð.
15
Svo segir Drottinn Guð um Týrus: Munu ekki eyjarnar gnötra við dynkinn af hruni þínu, þá er hinir vegnu stynja, þá er sverðið brytjar fólkið niður í þér?
16
Og allir þjóðhöfðingjar við hafið munu stíga niður af hásætum sínum og leggja af sér skikkjur sínar og fara úr litklæðum sínum. Þeir munu íklæðast skelfingu, þeir munu setjast á jörðina, þeir munu vera síhræddir og sem agndofa þín vegna.
17
Og þeir munu hefja upp harmljóð yfir þér og segja um þig: Hversu ert þú eydd, horfin frá hafinu, þú vegsamaða borg, sem voldug varst á hafinu, hún og íbúar hennar, sem skutu skelk í bringu öllum nábúum sínum.
18
Nú nötra sælöndin á degi falls þíns og eyjarnar í hafinu eru skelfdar yfir afdrifum þínum.
19
Því að svo segir Drottinn Guð: Þegar ég gjöri þig að eyddri borg, eins og þær borgir, sem óbyggðar eru, þegar ég læt hafsjóinn streyma yfir þig, svo að hin miklu vötn hylji þig,
20
þá steypi ég þér niður til þeirra, sem ofan eru farnir í gröfina, til manna frá fyrri tíðum, og bý þér stað í undirheimum, eins og ævagömlum rústum, hjá þeim sem ofan eru farnir í gröfina, til þess að þú verðir ekki byggð framar og standir ekki framar á landi lifandi manna.
21
Ég sel þig á vald voveiflegri glötun, og þú munt farast. Þín mun verða leitað, en þú munt aldrei finnast til eilífðar, - segir Drottinn Guð.”
← Chapter 25
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 27 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48