bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Isaiah 38
Isaiah 38
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 37
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 39 →
1
Um þær mundir tók Hiskía sótt og var að dauða kominn. Þá kom Jesaja Amozson spámaður til hans og sagði við hann: “Svo segir Drottinn: Ráðstafa húsi þínu, því að þú munt deyja og eigi lifa.”
2
Þá sneri Hiskía andliti sínu til veggjar, bað til Drottins
3
og mælti: “Æ, Drottinn, minnstu þess, að ég hefi gengið fyrir augliti þínu með trúmennsku og einlægu hjarta og gjört það, sem þér er þóknanlegt!” Og hann grét sáran.
4
Þá kom orð Drottins, til Jesaja, svolátandi:
5
“Far og seg Hiskía: Svo segir Drottinn, Guð Davíðs, forföður þíns: Ég hefi heyrt bæn þína og séð tár þín. Sjá, ég vil enn leggja fimmtán ár við aldur þinn.
6
Og ég vil frelsa þig og þessa borg af hendi Assýríukonungs, og ég mun vernda þessa borg.
7
Og þetta skalt þú til marks hafa af Drottni, að Drottinn muni efna það, sem hann hefir heitið:
8
Sjá, ég færi aftur stigskuggann, er með sólinni hefir færst niður á sólskífu Akasar, um tíu stig.” Og sólin færðist aftur á bak þau tíu stig á sólskífunni, er hún hafði gengið niður.
9
Sálmur eftir Hiskía konung í Júda, þá er hann hafði verið sjúkur, en var heill orðinn af sjúkleik sínum.
10
Ég sagði: Á hádegi ævi minnar stend ég við dauðans dyr. Það sem eftir er ára minna er ég ofurseldur hliðum Heljar.
11
Ég sagði: Ég fæ eigi framar að sjá Drottin á landi lifenda, ég fæ eigi framar menn að líta meðal þeirra sem heiminn byggja.
12
Bústað mínum er kippt upp og svipt burt frá mér eins og hjarðmannatjaldi. Ég hefi undið upp líf mitt eins og vefari. Hann sker mig frá uppistöðunni. Þú þjáir mig frá því að dagar og þar til nóttin kemur.
13
Ég þreyði til morguns. Öll mín bein voru kramin eins og af ljónshrammi. Þú þjáir mig frá því að dagar og þar til nóttin kemur.
14
Ég tísti sem svala og kurra sem dúfa. Augu mín mæna til himins. Drottinn, ég er í nauðum, líkna þú mér.
15
Hvað á ég að segja? Hann talaði til mín og efndi sín orð. Í auðmýkt vil ég ganga alla mína lífdaga, því minni sálarangist er létt.
16
Drottinn, af þessu lifa menn, og í öllu þessu er líf anda míns fólgið, þú gafst mér heilsuna aftur og lést mig lifna við.
17
Sjá, til blessunar varð mér hin sára kvöl. Þú forðaðir lífi mínu frá gröf eyðingarinnar, því að þú varpaðir að baki þér öllum syndum mínum.
18
Hel vegsamar þig eigi, dauðinn lofar þig eigi. Þeir sem niður eru stignir í gröfina vona eigi á trúfesti þína.
19
En sá einn lofar þig, sem lifir, eins og ég í dag. Feður kunngjöra börnum sínum trúfesti þína.
20
Drottinn er mitt hjálpræði. Í húsi Drottins skulum vér því hreyfa strengina alla vora lífdaga.
21
Og Jesaja bauð að taka skyldi fíkjudeig og leggja á kýlið, og mundi honum þá batna.
22
En Hiskía sagði: “Hvað skal ég hafa til marks um það, að ég megi aftur ganga upp í hús Drottins?”
← Chapter 37
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 39 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66