bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Psalms 119
Psalms 119
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 118
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 67
Chapter 68
Chapter 69
Chapter 70
Chapter 71
Chapter 72
Chapter 73
Chapter 74
Chapter 75
Chapter 76
Chapter 77
Chapter 78
Chapter 79
Chapter 80
Chapter 81
Chapter 82
Chapter 83
Chapter 84
Chapter 85
Chapter 86
Chapter 87
Chapter 88
Chapter 89
Chapter 90
Chapter 91
Chapter 92
Chapter 93
Chapter 94
Chapter 95
Chapter 96
Chapter 97
Chapter 98
Chapter 99
Chapter 100
Chapter 101
Chapter 102
Chapter 103
Chapter 104
Chapter 105
Chapter 106
Chapter 107
Chapter 108
Chapter 109
Chapter 110
Chapter 111
Chapter 112
Chapter 113
Chapter 114
Chapter 115
Chapter 116
Chapter 117
Chapter 118
Chapter 119
Chapter 120
Chapter 121
Chapter 122
Chapter 123
Chapter 124
Chapter 125
Chapter 126
Chapter 127
Chapter 128
Chapter 129
Chapter 130
Chapter 131
Chapter 132
Chapter 133
Chapter 134
Chapter 135
Chapter 136
Chapter 137
Chapter 138
Chapter 139
Chapter 140
Chapter 141
Chapter 142
Chapter 143
Chapter 144
Chapter 145
Chapter 146
Chapter 147
Chapter 148
Chapter 149
Chapter 150
Chapter 120 →
1
Sælir eru þeir sem breyta grandvarlega, þeir er fram ganga í lögmáli Drottins.
2
Sælir eru þeir er halda reglur hans, þeir er leita hans af öllu hjarta
3
og eigi fremja ranglæti, en ganga á vegum hans.
4
Þú hefir gefið skipanir þínar, til þess að menn skuli halda þær vandlega.
5
Ó að breytni mín mætti vera staðföst, svo að ég varðveiti lög þín.
6
Þá mun ég eigi til skammar verða, er ég gef gaum að öllum boðum þínum.
7
Ég skal þakka þér af einlægu hjarta, er ég hefi numið þín réttlátu ákvæði.
8
Ég vil gæta laga þinna, þá munt þú alls ekki yfirgefa mig.
9
Með hverju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum? Með því að gefa gaum að orði þínu.
10
Ég leita þín af öllu hjarta, lát mig eigi villast frá boðum þínum.
11
Ég geymi orð þín í hjarta mínu, til þess að ég skuli eigi syndga gegn þér.
12
Lofaður sért þú, Drottinn, kenn mér lög þín.
13
Með vörum mínum tel ég upp öll ákvæði munns þíns.
14
Yfir vegi vitnisburða þinna gleðst ég eins og yfir alls konar auði.
15
Fyrirmæli þín vil ég íhuga og skoða vegu þína.
16
Ég leita unaðar í lögum þínum, gleymi eigi orði þínu.
17
Veit þjóni þínum að lifa, að ég megi halda orð þín.
18
Ljúk upp augum mínum, að ég megi skoða dásemdirnar í lögmáli þínu.
19
Ég er útlendingur á jörðunni, dyl eigi boð þín fyrir mér.
20
Sál mín er kvalin af þrá eftir ákvæðum þínum alla tíma.
21
Þú hefir ógnað ofstopamönnunum, bölvaðir eru þeir, sem víkja frá boðum þínum.
22
Velt þú af mér háðung og skömm, því að ég hefi haldið reglur þínar.
23
Þótt þjóðhöfðingjar sitji og taki saman ráð sín gegn mér, þá íhugar þjónn þinn lög þín.
24
Og reglur þínar eru unun mín, boð þín eru ráðgjafar mínir.
25
Sál mín loðir við duftið, lát mig lífi halda eftir orði þínu.
26
Ég hefi talið upp málefni mín, og þú bænheyrðir mig, kenn mér lög þín.
27
Lát mig skilja veg fyrirmæla þinna, að ég megi íhuga dásemdir þínar.
28
Sál mín tárast af trega, reis mig upp eftir orði þínu.
29
Lát veg lyginnar vera fjarri mér og veit mér náðarsamlega lögmál þitt.
30
Ég hefi útvalið veg sannleikans, sett mér ákvæði þín fyrir sjónir.
31
Ég held fast við reglur þínar, Drottinn, lát mig eigi verða til skammar.
32
Ég vil skunda veg boða þinna, því að þú hefir gjört mér létt um hjartað.
33
Kenn mér, Drottinn, veg laga þinna, að ég megi halda þau allt til enda.
34
Veit mér skyn, að ég megi halda lögmál þitt og varðveita það af öllu hjarta.
35
Leið mig götu boða þinna, því að af henni hefi ég yndi.
36
Beyg hjarta mitt að reglum þínum, en eigi að ranglátum ávinningi.
37
Snú augum mínum frá því að horfa á hégóma, lífga mig á vegum þínum.
38
Staðfest fyrirheit þitt fyrir þjóni þínum, sem gefið er þeim er þig óttast.
39
Nem burt háðungina, sem ég er hræddur við, því að ákvæði þín eru góð.
40
Sjá, ég þrái fyrirmæli þín, lífga mig með réttlæti þínu.
41
Lát náð þína koma yfir mig, Drottinn, hjálpræði þitt, samkvæmt fyrirheiti þínu,
42
að ég fái andsvör veitt þeim er smána mig, því að þínu orði treysti ég.
43
Og tak aldrei sannleikans orð burt úr munni mínum, því að ég bíð dóma þinna.
44
Ég vil stöðugt varðveita lögmál þitt, um aldur og ævi,
45
þá mun ég ganga um víðlendi, því að ég leita fyrirmæla þinna,
46
þá mun ég tala um reglur þínar frammi fyrir konungum, og eigi skammast mín,
47
og leita unaðar í boðum þínum, þeim er ég elska,
48
og rétta út hendurnar eftir boðum þínum, þeim er ég elska, og íhuga lög þín.
49
Minnst þú þess orðs við þjón þinn, sem þú lést mig vona á.
50
Þetta er huggun mín í eymd minni, að orð þitt lætur mig lífi halda.
51
Ofstopamenn spotta mig ákaflega, en ég vík eigi frá lögmáli þínu.
52
Ég minnist dóma þinna frá öndverðu, Drottinn, og læt huggast.
53
Heiftarreiði við óguðlega hrífur mig, við þá er yfirgefa lögmál þitt.
54
Lög þín eru efni ljóða minna á þessum stað, þar sem ég er gestur.
55
Um nætur minnist ég nafns þíns, Drottinn, og geymi laga þinna.
56
Þetta er orðin hlutdeild mín, að halda fyrirmæli þín.
57
Drottinn er hlutskipti mitt, ég hefi ákveðið að varðveita orð þín.
58
Ég hefi leitað hylli þinnar af öllu hjarta, ver mér náðugur samkvæmt fyrirheiti þínu.
59
Ég hefi athugað vegu mína og snúið fótum mínum að reglum þínum.
60
Ég hefi flýtt mér og eigi tafið að varðveita boð þín.
61
Snörur óguðlegra lykja um mig, en lögmáli þínu hefi ég eigi gleymt.
62
Um miðnætti rís ég upp til þess að þakka þér þín réttlátu ákvæði.
63
Ég er félagi allra þeirra er óttast þig og varðveita fyrirmæli þín.
64
Jörðin er full af miskunn þinni, Drottinn, kenn mér lög þín.
65
Þú hefir gjört vel til þjóns þíns eftir orði þínu, Drottinn.
66
Kenn mér góð hyggindi og þekkingu, því að ég trúi á boð þín.
67
Áður en ég var beygður, villtist ég, en nú varðveiti ég orð þitt.
68
Þú ert góður og gjörir vel, kenn mér lög þín.
69
Ofstopamenn spinna upp lygar gegn mér, en ég held fyrirmæli þín af öllu hjarta.
70
Hjarta þeirra er tilfinningarlaust sem mör væri, en ég leita unaðar í lögmáli þínu.
71
Það varð mér til góðs, að ég var beygður, til þess að ég mætti læra lög þín.
72
Lögmálið af munni þínum er mér mætara en þúsundir af gulli og silfri.
73
Hendur þínar hafa gjört mig og skapað, veit mér skyn, að ég megi læra boð þín.
74
Þeir er óttast þig sjá mig og gleðjast, því að ég vona á orð þitt.
75
Ég veit, Drottinn, að dómar þínir eru réttlátir og að þú hefir lægt mig í trúfesti þinni.
76
Lát miskunn þína verða mér til huggunar, eins og þú hefir heitið þjóni þínum.
77
Lát miskunn þína koma yfir mig, að ég megi lifa, því að lögmál þitt er unun mín.
78
Lát ofstopamennina verða til skammar, af því að þeir kúga mig með rangsleitni, en ég íhuga fyrirmæli þín.
79
Til mín snúi sér þeir er óttast þig og þeir er þekkja reglur þínar.
80
Hjarta mitt sé grandvart í lögum þínum, svo að ég verði eigi til skammar.
81
Sál mín tærist af þrá eftir hjálpræði þínu, ég bíð eftir orði þínu.
82
Augu mín tærast af þrá eftir fyrirheiti þínu: Hvenær munt þú hugga mig?
83
Því að ég er orðinn eins og belgur í reykhúsi, en lögum þínum hefi ég eigi gleymt.
84
Hversu margir eru dagar þjóns þíns? Hvenær munt þú heyja dóm á ofsækjendum mínum?
85
Ofstopamenn hafa grafið mér grafir, menn, er eigi hlýða lögmáli þínu.
86
Öll boð þín eru trúfesti. Menn ofsækja mig með lygum, veit þú mér lið.
87
Nærri lá, að þeir gjörðu út af við mig á jörðunni, og þó hafði ég eigi yfirgefið fyrirmæli þín.
88
Lát mig lífi halda sakir miskunnar þinnar, að ég megi varðveita reglurnar af munni þínum.
89
Orð þitt, Drottinn, varir að eilífu, það stendur stöðugt á himnum.
90
Frá kyni til kyns varir trúfesti þín, þú hefir grundvallað jörðina, og hún stendur.
91
Eftir ákvæðum þínum stendur hún enn í dag, því að allt lýtur þér.
92
Ef lögmál þitt hefði eigi verið unun mín, þá hefði ég farist í eymd minni.
93
Ég skal eigi gleyma fyrirmælum þínum að eilífu, því að með þeim hefir þú látið mig lífi halda.
94
Þinn er ég, hjálpa þú mér, því að ég leita fyrirmæla þinna.
95
Óguðlegir bíða mín til þess að tortíma mér, en ég gef gætur að reglum þínum.
96
Á allri fullkomnun hefi ég séð endi, en þín boð eiga sér engin takmörk.
97
Hve mjög elska ég lögmál þitt, allan liðlangan daginn íhuga ég það.
98
Boð þín hafa gjört mig vitrari en óvinir mínir eru, því að þau heyra mér til um eilífð.
99
Ég er hyggnari en allir kennarar mínir, því að ég íhuga reglur þínar.
100
Ég er skynsamari en öldungar, því að ég held fyrirmæli þín.
101
Ég held fæti mínum frá hverjum vondum vegi til þess að gæta orðs þíns.
102
Frá ákvæðum þínum hefi ég eigi vikið, því að þú hefir frætt mig.
103
Hversu sæt eru fyrirheit þín gómi mínum, hunangi betri munni mínum.
104
Af fyrirmælum þínum er ég skynsamur orðinn, fyrir því hata ég sérhvern lygaveg.
105
Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.
106
Ég hefi svarið og haldið það að varðveita þín réttlátu ákvæði.
107
Ég er mjög beygður, Drottinn, lát mig lífi halda eftir orði þínu.
108
Haf þóknun á sjálfviljafórnum munns míns, Drottinn, og kenn mér ákvæði þín.
109
Líf mitt er ætíð í hættu, en þínu lögmáli hefi ég eigi gleymt.
110
Óguðlegir hafa lagt snöru fyrir mig, en ég hefi eigi villst frá fyrirmælum þínum.
111
Reglur þínar eru eign mín um aldur, því að þær eru yndi hjarta míns.
112
Ég hneigi hjarta mitt að því að breyta eftir lögum þínum, um aldur og allt til enda.
113
Ég hata þá, er haltra til beggja hliða, en lögmál þitt elska ég.
114
Þú ert skjól mitt og skjöldur, ég vona á orð þitt.
115
Burt frá mér, þér illgjörðamenn, að ég megi halda boð Guðs míns.
116
Styð mig samkvæmt fyrirheiti þínu, að ég megi lifa, og lát mig eigi til skammar verða í von minni.
117
Styð þú mig, að ég megi frelsast og ætíð líta til laga þinna.
118
Þú hafnar öllum þeim, er villast frá lögum þínum, því að svik þeirra eru til einskis.
119
Sem sora metur þú alla óguðlega á jörðu, þess vegna elska ég reglur þínar.
120
Hold mitt nötrar af hræðslu fyrir þér, og dóma þína óttast ég.
121
Ég hefi iðkað rétt og réttlæti, sel mig eigi í hendur kúgurum mínum.
122
Gakk í ábyrgð fyrir þjón þinn, honum til heilla, lát eigi ofstopamennina kúga mig.
123
Augu mín tærast af þrá eftir hjálpræði þínu og eftir þínu réttláta fyrirheiti.
124
Far með þjón þinn eftir miskunn þinni og kenn mér lög þín.
125
Ég er þjónn þinn, veit mér skyn, að ég megi þekkja reglur þínar.
126
Tími er kominn fyrir Drottin að taka í taumana, þeir hafa rofið lögmál þitt.
127
Þess vegna elska ég boð þín framar en gull og skíragull.
128
Þess vegna held ég beina leið eftir öllum fyrirmælum þínum, ég hata sérhvern lygaveg.
129
Reglur þínar eru dásamlegar, þess vegna heldur sál mín þær.
130
Útskýring orðs þíns upplýsir, gjörir fávísa vitra.
131
Ég opna munninn af ílöngun, því ég þrái boð þín.
132
Snú þér til mín og ver mér náðugur, eins og ákveðið er þeim er elska nafn þitt.
133
Gjör skref mín örugg með fyrirheiti þínu og lát ekkert ranglæti drottna yfir mér.
134
Leys mig undan kúgun manna, að ég megi varðveita fyrirmæli þín.
135
Lát ásjónu þína lýsa yfir þjón þinn og kenn mér lög þín.
136
Augu mín fljóta í tárum, af því að menn varðveita eigi lögmál þitt.
137
Réttlátur ert þú, Drottinn, og réttvísir dómar þínir.
138
Þú hefir skipað fyrir reglur þínar með réttlæti og mikilli trúfesti.
139
Ákefð mín eyðir mér, því að fjendur mínir hafa gleymt orðum þínum.
140
Orð þitt er mjög hreint, og þjónn þinn elskar það.
141
Ég er lítilmótlegur og fyrirlitinn, en fyrirmælum þínum hefi ég eigi gleymt.
142
Réttlæti þitt er eilíft réttlæti og lögmál þitt trúfesti.
143
Neyð og hörmung hafa mér að höndum borið, en boð þín eru unun mín.
144
Reglur þínar eru réttlæti um eilífð, veit mér skyn, að ég megi lifa.
145
Ég kalla af öllu hjarta, bænheyr mig, Drottinn, ég vil halda lög þín.
146
Ég ákalla þig, hjálpa þú mér, að ég megi varðveita reglur þínar.
147
Ég er á ferli fyrir dögun og hrópa og bíð orða þinna.
148
Fyrr en vakan hefst eru augu mín vökul til þess að íhuga orð þitt.
149
Hlýð á raust mína eftir miskunn þinni, lát mig lífi halda, Drottinn, eftir ákvæðum þínum.
150
Þeir eru nærri, er ofsækja mig af fláræði, þeir eru langt burtu frá lögmáli þínu.
151
Þú ert nálægur, Drottinn, og öll boð þín eru trúfesti.
152
Fyrir löngu hefi ég vitað um reglur þínar, að þú hefir grundvallað þær um eilífð.
153
Sjá þú eymd mína og frelsa mig, því að ég hefi eigi gleymt lögmáli þínu.
154
Flyt þú mál mitt og leys mig, lát mig lífi halda samkvæmt fyrirheiti þínu.
155
Hjálpræðið er fjarri óguðlegum, því að þeir leita eigi fyrirmæla þinna.
156
Mikil er miskunn þín, Drottinn, lát mig lífi halda eftir ákvæðum þínum.
157
Margir eru ofsækjendur mínir og fjendur, en frá reglum þínum hefi ég eigi vikið.
158
Ég sé trúrofana og kenni viðbjóðs, þeir varðveita eigi orð þitt.
159
Sjá, hversu ég elska fyrirmæli þín, lát mig lífi halda, Drottinn, eftir miskunn þinni.
160
Allt orð þitt samanlagt er trúfesti, og hvert réttlætisákvæði þitt varir að eilífu.
161
Höfðingjar ofsækja mig að ástæðulausu, en hjarta mitt óttast orð þín.
162
Ég gleðst yfir fyrirheiti þínu eins og sá er fær mikið herfang.
163
Ég hata lygi og hefi andstyggð á henni, en þitt lögmál elska ég.
164
Sjö sinnum á dag lofa ég þig sakir þinna réttlátu ákvæða.
165
Gnótt friðar hafa þeir er elska lögmál þitt, og þeim er við engri hrösun hætt.
166
Ég vænti hjálpræðis þíns, Drottinn, og framkvæmi boð þín.
167
Sál mín varðveitir reglur þínar, og þær elska ég mjög.
168
Ég varðveiti fyrirmæli þín og reglur, allir mínir vegir eru þér augljósir.
169
Ó að hróp mitt mætti nálgast auglit þitt, Drottinn, veit mér að skynja í samræmi við orð þitt.
170
Ó að grátbeiðni mín mætti koma fyrir auglit þitt, frelsa mig samkvæmt fyrirheiti þínu.
171
Lof um þig skal streyma mér af vörum, því að þú kennir mér lög þín.
172
Tunga mín skal mæra orð þitt, því að öll boðorð þín eru réttlæti.
173
Hönd þín veiti mér lið, því að þín fyrirmæli hefi ég útvalið.
174
Ég þrái hjálpræði þitt, Drottinn, og lögmál þitt er unun mín.
175
Lát sál mína lifa, að hún megi lofa þig og dómar þínir veiti mér lið.
176
Ég villist sem týndur sauður, leita þú þjóns þíns, því að þínum boðum hefi ég eigi gleymt.
← Chapter 118
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 67
Chapter 68
Chapter 69
Chapter 70
Chapter 71
Chapter 72
Chapter 73
Chapter 74
Chapter 75
Chapter 76
Chapter 77
Chapter 78
Chapter 79
Chapter 80
Chapter 81
Chapter 82
Chapter 83
Chapter 84
Chapter 85
Chapter 86
Chapter 87
Chapter 88
Chapter 89
Chapter 90
Chapter 91
Chapter 92
Chapter 93
Chapter 94
Chapter 95
Chapter 96
Chapter 97
Chapter 98
Chapter 99
Chapter 100
Chapter 101
Chapter 102
Chapter 103
Chapter 104
Chapter 105
Chapter 106
Chapter 107
Chapter 108
Chapter 109
Chapter 110
Chapter 111
Chapter 112
Chapter 113
Chapter 114
Chapter 115
Chapter 116
Chapter 117
Chapter 118
Chapter 119
Chapter 120
Chapter 121
Chapter 122
Chapter 123
Chapter 124
Chapter 125
Chapter 126
Chapter 127
Chapter 128
Chapter 129
Chapter 130
Chapter 131
Chapter 132
Chapter 133
Chapter 134
Chapter 135
Chapter 136
Chapter 137
Chapter 138
Chapter 139
Chapter 140
Chapter 141
Chapter 142
Chapter 143
Chapter 144
Chapter 145
Chapter 146
Chapter 147
Chapter 148
Chapter 149
Chapter 150
Chapter 120 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66
67
68
69
70
71
72
73
74
75
76
77
78
79
80
81
82
83
84
85
86
87
88
89
90
91
92
93
94
95
96
97
98
99
100
101
102
103
104
105
106
107
108
109
110
111
112
113
114
115
116
117
118
119
120
121
122
123
124
125
126
127
128
129
130
131
132
133
134
135
136
137
138
139
140
141
142
143
144
145
146
147
148
149
150