bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Romans 10
Romans 10
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 9
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 11 →
1
Bræður, það er hjartans ósk mín og bæn til Guðs, að þeir megi hólpnir verða.
2
Það ber ég þeim, að þeir eru kappsfullir Guðs vegna, en ekki með réttum skilningi.
3
Með því þeir þekkja ekki réttlæti Guðs og leitast við að koma til vegar eigin réttlæti, hafa þeir ekki gefið sig undir réttlæti Guðs.
4
En Kristur er endalok lögmálsins, svo að nú réttlætist sérhver sá, sem trúir.
5
Því að Móse ritar um réttlætið, sem lögmálið veitir: “Sá maður, sem breytir eftir lögmálinu, mun lifa fyrir það.”
6
En réttlætið af trúnni mælir þannig: “Seg þú ekki í hjarta þínu: Hver mun fara upp í himininn?” - það er: til að sækja Krist ofan, -
7
eða: “Hver mun stíga niður í undirdjúpið?” - það er: til að sækja Krist upp frá dauðum.
8
Hvað segir það svo? “Nálægt þér er orðið, í munni þínum og í hjarta þínu.” Það er: Orð trúarinnar, sem vér prédikum.
9
Ef þú játar með munni þínum: Jesús er Drottinn - og trúir í hjarta þínu, að Guð hafi uppvakið hann frá dauðum, muntu hólpinn verða.
10
Með hjartanu er trúað til réttlætis, en með munninum játað til hjálpræðis.
11
Ritningin segir: “Hver sem trúir á hann, mun ekki til skammar verða.”
12
Ekki er munur á Gyðingi og grískum manni, því að hinn sami er Drottinn allra, fullríkur fyrir alla þá sem ákalla hann;
13
því að “hver sem ákallar nafn Drottins, mun hólpinn verða.”
14
En hvernig eiga þeir að ákalla þann, sem þeir trúa ekki á? Og hvernig eiga þeir að trúa á þann, sem þeir hafa ekki heyrt um? Og hvernig eiga þeir að heyra, án þess að einhver prédiki?
15
Og hver getur prédikað, nema hann sé sendur? Svo er og ritað: “Hversu fagurt er fótatak þeirra, sem færa fagnaðarboðin góðu.”
16
En þeir hlýddu ekki allir fagnaðarerindinu. Jesaja segir: “Drottinn, hver trúði því, sem vér boðuðum?”
17
Svo kemur þá trúin af boðuninni, en boðunin byggist á orði Krists.
18
En ég spyr: Hafa þeir ekki heyrt? Jú, vissulega, “raust þeirra hefur borist út um alla jörðina og orð þeirra til endimarka heimsbyggðarinnar.”
19
Og ég spyr: Hvort skildi Ísrael það ekki? Fyrst segir Móse: “Vekja vil ég yður til afbrýði gegn þjóð, sem ekki er þjóð, egna vil ég yður til reiði gegn óviturri þjóð.”
20
Og Jesaja er svo djarfmáll að segja: “Ég hef látið þá finna mig, sem leituðu mín ekki. Ég er orðinn augljós þeim, sem spurðu ekki að mér.”
21
En við Ísrael segir hann: “Allan daginn breiddi ég út hendur mínar móti óhlýðnum og þverbrotnum lýð.”
← Chapter 9
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 11 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16