bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
1 Chronicles 23
1 Chronicles 23
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 22
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 24 →
1
Þegar Davíð var orðinn gamall og saddur lífdaga gerði hann Salómon, son sinn, að konungi yfir Ísrael.
2
Hann safnaði því saman öllum leiðtogum Ísraels, prestum og Levítum.
3
Levítarnir, þrítugir og eldri, höfðu verið taldir. Var fjöldi þeirra þrjátíu og átta þúsund.
4
Tuttugu og fjögur þúsund þeirra áttu að stjórna vinnunni í húsi Drottins, sex þúsund áttu að vera embættismenn og dómarar,
5
fjögur þúsund hliðverðir og fjögur þúsund áttu að lofa Drottin með hljóðfærunum sem Davíð hafði látið gera til lofgjörðarinnar.
6
Davíð skipti Levítunum í flokka eftir sonum Leví: Gerson, Kahat og Merarí.
7
Til niðja Gersons töldust Laedan og Símeí.
8
Jehíel var elstur af sonum Laedans, þá Setam og Jóel, alls þrír.
9
Synir Jehíels voru Selómót, Hasíel og Haran, alls þrír. Þeir voru ættarhöfðingjar Laedans.
10
Synir Símeí voru Jahat, Sína, Jeús og Bería. Þetta voru fjórir synir Símeí.
11
Jahat var elstur og Sísa næstur. Jeús og Bería áttu aðeins fáa syni. Þeir mynduðu því aðeins eina fjölskyldu, einn þjónustuflokk.
12
Synir Kahats voru Amram, Jísehar, Hebron og Ússíel, alls fjórir.
13
Aron og Móse voru synir Amrams. Aron var sérstaklega valinn til þess að sjá ævinlega um hið háheilaga ásamt sonum sínum, brenna reykelsisfórn frammi fyrir augliti Drottins og þjóna honum og blessa í nafni hans um aldur.
14
En synir guðsmannsins Móse töldust til ættbálks Leví.
15
Synir Móse voru Gersóm og Elíeser.
16
Sebúel var elstur af sonum Gersóms.
17
Rehabja höfðingi var sonur Elíesers. Elíeser átti ekki aðra syni en synir Rehabja voru mjög margir.
18
Selomít var elsti sonur Jísehars.
19
Synir Hebrons voru Jería, sem var elstur, Amarja næstur, Jakasíel þriðji og Jekameam fjórði.
20
Elsti sonur Ússíels var Míka og Jessía næstur honum.
21
Synir Merarí voru Mahlí og Músí. Synir Mahlí voru Eleasar og Kís.
22
Þegar Eleasar dó hafði hann ekki eignast neina syni, aðeins dætur. Synir Kíss, frændur þeirra, tóku þær sér fyrir konur.
23
Synir Músí voru Mahlí, Eder og Jeremót, alls þrír.
24
Þetta voru niðjar Leví, flokkaðir eftir fjölskyldum sínum, ættarhöfðingjar þeirra eins og þeir voru skráðir með nafni og taldir hver um sig. Þeir sem voru tuttugu ára og eldri sáu um þjónustuna í húsi Drottins.
25
Davíð hafði sagt: „Drottinn, Guð Ísraels, hefur veitt þjóð sinni frið og er sestur að í Jerúsalem um alla framtíð.
26
Levítarnir þurfa því ekki lengur að bera tjaldið og öll áhöldin sem þarf til þjónustunnar þar,“
27
því að samkvæmt síðustu fyrirmælum Davíðs voru Levítarnir taldir tuttugu ára og eldri.
28
Þeir hlutu stöðu við hlið sona Arons við þjónustu í húsi Drottins, til að sjá um forgarðana og herbergin og hreinsun alls þess sem heilagt er. Einnig eiga þeir að þjóna í húsi Drottins,
29
sjá um skoðunarbrauðin, fínmalað mjöl í kornfórnir og ósýrð brauð, pönnur og bakstur. Þeir skulu einnig sjá um vökvamál og lengdarmál.
30
Þeim ber að taka sér stöðu kvölds og morgna til að þakka Drottni og lofa hann.
31
Við allar brennifórnir, sem færðar eru Drottni á hvíldardögum, tunglkomudögum og hátíðum, skulu þeir jafnan þjóna allir frammi fyrir Drottni eins og þeim ber.
32
Þeir skulu hafa á hendi þjónustu í opinberunartjaldinu, í helgidóminum og við syni Arons, embættisbræður sína, þegar þeir þjóna í húsi Drottins.
← Chapter 22
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 24 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29