bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
2 Kings 15
2 Kings 15
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 14
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 16 →
1
Á tuttugasta og sjöunda stjórnarári Jeróbóams Ísraelskonungs varð Asaría konungur en hann var sonur Amasía Júdakonungs.
2
Hann var sextán ára þegar hann varð konungur og ríkti fimmtíu og tvö ár í Jerúsalem. Móðir hans hét Jekolja og var frá Jerúsalem.
3
Hann gerði það sem rétt var í augum Drottins, alveg eins og Amasía, faðir hans.
4
Fórnarhæðirnar voru þó ekki aflagðar og fólkið hélt áfram að færa sláturfórnir og reykelsisfórnir á hæðunum.
5
Drottinn laust þá konunginn svo að hann var holdsveikur allt til dauðadags og bjó í sérstöku húsi en Jótam, sonur konungs, varð hirðstjóri og ríkti yfir þjóðinni.
6
Það sem ósagt er af sögu Asaría og verkum hans er skráð í annála Júdakonunga.
7
Asaría var lagður til hvíldar hjá feðrum sínum og grafinn hjá þeim í borg Davíðs. Jótam, sonur hans, varð konungur eftir hann.
8
Á þrítugasta og áttunda stjórnarári Asaría, konungs í Júda, varð Sakaría Jeróbóamsson konungur yfir Ísrael og ríkti sex mánuði í Samaríu.
9
Hann gerði það sem illt var í augum Drottins eins og forfeður hans. Hann sneri ekki baki við þeim syndum sem Jeróbóam Nebatsson kom Ísrael til að drýgja.
10
Sallúm Jabesson gerði samsæri gegn honum, drap hann í Jibleam og varð konungur eftir hann.
11
Það sem ósagt er af sögu Sakaría er skráð í annála Ísraelskonunga.
12
Þar með rættist orð Drottins sem hann hafði flutt Jehú: „Synir þínir skulu sitja í hásæti Ísraels í fjóra ættliði.“
13
Sallúm Jabesson varð konungur á þrítugasta og níunda stjórnarári Ússía, konungs í Júda, og ríkti mánaðartíma í Samaríu.
14
En Menahem Gadíson hélt frá Tirsa og kom til Samaríu. Hann drap Sallúm Jabesson í Samaríu og varð konungur eftir hann.
15
Það sem ósagt er af sögu Sallúms og samsærinu, sem hann gerði, er skráð í annála Ísraelskonunga.
16
Á leið sinni frá Tirsa eyddi Menaham Tappúaborg og öllu sem í henni var af því að borgarhliðunum hafði ekki verið lokið upp. Hann lét rista allar þungaðar konur á kvið.
17
Á þrítugasta og níunda stjórnarári Asaría Júdakonungs varð Menahem Gadíson konungur yfir Ísrael. Hann ríkti tíu ár í Samaríu.
18
Hann gerði það sem illt var í augum Drottins. Hann sneri ekki baki við þeim syndum Jeróbóams Nebatssonar sem hann fékk Ísrael til að drýgja.
19
Á stjórnartíma hans réðst Púl Assýríukonungur inn í landið. Menahem gaf honum þúsund talentur silfurs til þess að Púl tryggði konungdóm hans.
20
Menahem jafnaði upphæðinni niður á alla auðmenn í Ísrael og skyldi hver þeirra um sig greiða Assýríukonungi fimmtíu sikla silfurs. Hélt þá Assýríukonungur á brott og hafði ekki lengri viðdvöl í landinu.
21
Það sem ósagt er af sögu Menahems og verkum hans er skráð í annála Ísraelskonunga.
22
Menahem var lagður til hvíldar hjá feðrum sínum. Pekaja, sonur hans, varð konungur eftir hann.
23
Á fimmtugasta stjórnarári Asaría, konungs í Júda, varð Pekaja Menahemsson konungur yfir Ísrael og ríkti tvö ár í Samaríu.
24
Hann gerði það sem illt var í augum Drottins. Hann sneri ekki baki við þeim syndum sem Jeróbóam Nebatsson kom Ísrael til að drýgja.
25
Peka Remaljason, liðsforingi hans, gerði samsæri gegn honum og drap hann í íbúð konungs í höllinni í Samaríu. Peka hafði fimmtíu menn frá Gíleað með sér, drap Pekaja og varð konungur eftir hann.
26
Það sem ósagt er af sögu Pekaja og verkum hans er skráð í annála Ísraelskonunga.
27
Á fimmtugasta og öðru stjórnarári Asaría, konungs í Júda, varð Peka Remaljason konungur yfir Ísrael og ríkti tuttugu ár í Samaríu.
28
Hann gerði það sem illt var í augum Drottins. Hann sneri ekki baki við þeim syndum sem Jeróbóam Nebatsson kom Ísrael til að drýgja.
29
Í stjórnartíð Peka Ísraelskonungs kom Tíglat Píleser Assýríukonungur og tók Íjón, Abel Bet Maaka, Janóa, Kades, Hasór, Gíleað og Galíleu, allt Naftalíland, og flutti íbúana í útlegð til Assýríu.
30
Þá gerði Hósea Elason samsæri gegn Peka Remaljasyni, drap hann og varð konungur eftir hann á tuttugasta stjórnarári Jótams Ússíasonar.
31
Það sem ósagt er af sögu Peka og verkum hans er skráð í annála Ísraelskonunga.
32
Á öðru stjórnarári Peka Remaljasonar varð Jótam Ússíason Júdakonungur.
33
Hann var tuttugu og fimm ára þegar hann varð konungur og ríkti sextán ár í Jerúsalem. Móðir hans hét Jerúsa og var Sadóksdóttir.
34
Hann gerði það sem rétt var í augum Drottins, alveg eins og Ússía, faðir hans.
35
Fórnarhæðirnar voru þó ekki aflagðar og fólkið hélt áfram að færa sláturfórnir og reykelsisfórnir á hæðunum. Það var Jótam sem lét reisa efra hliðið í musteri Drottins.
36
Það sem ósagt er af sögu Jótams og verkum hans er skráð í annála Júdakonunga.
37
Um þetta leyti tók Drottinn að láta Resín, konung Arams, og Peka Remaljason ráðast á Júda.
38
Jótam var lagður til hvíldar hjá feðrum sínum og grafinn hjá þeim í borg Davíðs, forföður síns. Akas, sonur hans, varð konungur eftir hann.
← Chapter 14
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 16 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25