bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Joel 3
Joel 3
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 2
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
1
Síðar mun ég úthella anda mínum yfir alla menn. Synir yðar og dætur munu spá, gamalmenni yðar mun dreyma drauma og ungmenni yðar munu fá vitranir,
2
jafnvel yfir þræla og ambáttir mun ég úthella anda mínum á þeim dögum.
3
Og tákn mun ég láta verða á himni og jörð: blóð, eld og reykjarstróka.
4
Sólin verður myrk og tunglið sem blóð áður en dagur Drottins kemur, hinn mikli og ógurlegi.
5
En hver sem ákallar nafn Drottins verður hólpinn. Á Síonarfjalli og í Jerúsalem munu nokkrir lifa af eins og Drottinn hefur heitið. Hver sem ákallar nafn Drottins mun frelsast.
← Chapter 2
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
All chapters:
1
2
3