bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Joshua 11
Joshua 11
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 10
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 12 →
1
Þegar Jabín, konungur í Hasór, frétti þetta sendi hann boð til Jóbabs, konungs í Madón, konungsins í Simron, konungsins í Aksaf
2
og konunganna norður í fjalllendinu og á Arabasléttunni sunnan Kinneret og á láglendinu og á Dórhæðum í vestri,
3
einnig til Kanverjanna í austri og vestri, Amorítanna, Hetítanna, Peresítanna og Jebúsítanna í fjalllendinu og til Hevítanna undir Hermon í Mispalandi.
4
Þeir héldu af stað með allar hersveitir sínar. Voru hermennirnir sem sandur á sjávarströnd og auk þess mikill fjöldi hesta og vagna.
5
Allir þessir konungar komu nú saman, héldu af stað og slógu upp einum herbúðum við Merómvatn og bjuggust til bardaga við Ísraelsmenn.
6
Þá sagði Drottinn við Jósúa: „Óttastu ekki frammi fyrir þeim. Um þetta leyti á morgun mun ég láta þá alla liggja gegnumstungna frammi fyrir Ísrael. Þá skalt þú skera hásinarnar á hestum þeirra og brenna vagna þeirra í eldi.“
7
Jósúa og allur her hans kom að þeim óvörum hjá Merómvatni og réðst á þá
8
og Drottinn seldi þá Ísraelsmönnum í hendur. Þeir sigruðu þá og veittu þeim eftirför alla leið að Sídon hinni miklu og Misrefót Majím allt austur á Mispasléttu í austri. Þeir gjörsigruðu þá og komst enginn af.
9
Jósúa fór með þá eins og Drottinn hafði fyrir hann lagt: Hann skar hásinar hesta þeirra og brenndi vagna þeirra í eldi.
10
Því næst sneri Jósúa aftur og vann Hasór og felldi konung hennar með sverði. Áður var Hasór mest þessara konungsríkja.
11
Þeir felldu alla íbúa borgarinnar með sverðseggjum og helguðu banni og þyrmdi Jósúa engu lifandi og lagði eld að Hasórborg.
12
Jósúa náði öllum þessum konungsborgum á sitt vald. Hann felldi konunga þeirra með sverðseggjum og helgaði þær banni eins og Móse, þjónn Drottins, hafði boðið.
13
Samt brenndi Ísrael ekki allar þessar borgir sem enn standa á hæðum sínum, aðeins Hasór eina.
14
Ísraelsmenn tóku allt herfang borganna sér til handa, einnig búfé þeirra, en hins vegar felldu þeir alla íbúana með sverðseggjum og tortímdu þeim. Þeir þyrmdu engu kviku.
15
Það sem Drottinn hafði lagt fyrir Móse, þjón sinn, bauð Móse Jósúa sem framfylgdi öllu sem Móse bauð og lét ekkert ógert af því sem Drottinn hafði boðið Móse.
16
Jósúa tók fjalllendið og allt Suðurlandið, allt Gósenland og láglendið, Arabasléttuna og fjalllendi Ísraels og láglendið
17
frá Halakfjalli, sem gnæfir yfir Seír, að Baal Gað í Líbanondalnum undir Hermonfjalli. Hann tók alla konunga þessara landa og hjó þá til bana.
18
Jósúa háði stríð við alla þessa konunga langa hríð.
19
Engin borg samdi frið við Ísraelsmenn nema Hevítarnir sem bjuggu í Gíbeon: Allar aðrar borgir varð að vinna með hernaði
20
því að það var frá Drottni komið að efla þeim kjark í stríðinu gegn Ísrael til þess að þeir yrðu vægðarlaust helgaðir banni og þeim tortímt eins og Drottinn hafði boðið Móse.
21
Á þessum tíma fór Jósúa upp í fjalllendið og eyddi einnig Anakítum úr fjöllunum, úr Hebron, Debír og Anab og úr öllu fjalllendi Júda og Ísraels. Jósúa helgaði þá banni og borgir þeirra.
22
Engir Anakítar urðu eftir í landi Ísraelsmanna heldur aðeins í Gasa, Gat og Asdód.
23
Jósúa vann allt landið eins og Drottinn hafði lagt fyrir Móse. Jósúa fékk Ísrael það að erfðahlut, hverjum ættbálki sinn hlut. Þar með var ófriði lokið og landið hvíldist.
← Chapter 10
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 12 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24