bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Lamentations 5
Lamentations 5
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
1
Minnstu þess, Drottinn, hvað hefur á oss dunið, lít þú á og sjá smán vora.
2
Arfleifð vor er komin í hendur framandi manna, húsin í hendur útlendinga.
3
Vér erum orðin munaðarlaus, föðurlaus, mæður vorar orðnar sem ekkjur.
4
Vatnið sem vér drekkum verðum vér að kaupa, viðinn fáum vér aðeins gegn borgun.
5
Ofsækjendur eru á hælum vorum, örþreytt fáum vér enga hvíld.
6
Vér gengum í bandalag við Egyptaland og Assýríu til þess að fá matbjörg.
7
Feður vorir syndguðu, þeir eru eigi framar til en vér berum sekt þeirra.
8
Þrælar drottna yfir oss, enginn hrífur oss úr höndum þeirra.
9
Vér hættum lífinu við að afla fæðu sökum sverðsins í eyðimörkinni.
10
Hörund vort er heitt eins og ofn af hungurbruna.
11
Konum er nauðgað í Síon, meyjum í borgum Júda,
12
höfðingjar gripnir og hengdir, öldungum engin virðing sýnd.
13
Æskumennirnir verða að þræla við kvörnina og sveinarnir hrasa undir viðarbyrðunum.
14
Öldungarnir eru horfnir úr borgarhliðunum, æskumennirnir frá strengleikum.
15
Fögnuður hjartna vorra er horfinn, gleðidans vor snúinn í sorg.
16
Kórónan er fallin af höfði voru, vei oss, því að vér höfum syndgað.
17
Sökum þessa er hjarta vort sjúkt og vegna þessa eru augu vor döpur,
18
vegna Síonarfjalls sem er í eyði og refir hlaupa nú um.
19
Þú, Drottinn, ríkir að eilífu, hásæti þitt stendur frá kyni til kyns.
20
Hví hefur þú gleymt oss með öllu, yfirgefið oss svo lengi?
21
Snú þú oss til þín, Drottinn, þá snúum vér aftur, endurnýja daga vora eins og til forna.
22
Eða hefur þú hafnað oss fyrir fullt og allt og ert oss reiður úr öllu hófi?
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
All chapters:
1
2
3
4
5