bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Luke 21
Luke 21
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 20
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 22 →
1
Þá leit Jesús upp og sá auðmenn leggja gjafir sínar í fjárhirsluna.
2
Hann sá og ekkju eina fátæka leggja þar tvo smápeninga.
3
Þá sagði hann: „Ég segi ykkur með sanni, þessi fátæka ekkja gaf meira en allir hinir.
4
Hinir allir lögðu í sjóðinn af allsnægtum sínum en hún gaf af skorti sínum, alla björg sína.“
5
Einhverjir höfðu orð á að helgidómurinn væri prýddur fögrum steinum og heitgjöfum. Þá sagði Jesús:
6
„Þeir dagar koma að allt sem hér blasir við verður lagt í rúst, ekki steinn yfir steini eftir.“
7
En þeir spurðu Jesú: „Meistari, hvenær verður þetta? Og hvert mun tákn þess að það sé að koma fram?“
8
Hann svaraði: „Varist að láta leiða yður í villu. Margir munu koma í mínu nafni og segja: Það er ég! og: Tíminn er í nánd! Fylgið þeim ekki.
9
En þegar þér spyrjið hernað og upphlaup, þá skelfist ekki. Þetta á undan að fara en endirinn kemur ekki samstundis.“
10
Síðan sagði Jesús við þá: „Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki,
11
þá verða landskjálftar miklir og drepsóttir og hungur á ýmsum stöðum en ógnir og tákn mikil á himni.
12
En á undan öllu þessu munu menn leggja hendur á yður, ofsækja yður, færa yður fyrir samkundur og í fangelsi og draga yður fyrir konunga og landshöfðingja sakir nafns míns.
13
Þetta veitir yður tækifæri til að bera mér vitni.
14
En festið það vel í huga að vera ekki fyrir fram að hugsa um hvernig þér eigið að verjast
15
því ég mun gefa yður orð og visku sem engir mótstöðumenn yðar fá staðið í gegn né hrakið.
16
Jafnvel foreldrar, systkin, frændfólk og vinir munu framselja yður og sumir yðar munu líflátnir.
17
Og allir munu hata yður af því að þér trúið á mig
18
en ekki mun týnast eitt hár á höfði yðar.
19
Verið þrautseigir, með því munuð þér ávinna lífið.
20
En þegar þér sjáið herfylkingar umkringja Jerúsalem, þá vitið að eyðing hennar er í nánd.
21
Þá flýi þau sem í Júdeu eru til fjalla, þau sem í borginni eru flytjist burt og þau sem eru á ekrum úti fari ekki inn í hana.
22
Því þetta eru refsingardagar, þá er allt það rætist sem ritað er.
23
Vei þeim sem þungaðar eru eða börn hafa á brjósti á þeim dögum því að mikil neyð mun þá verða í landinu og reiði yfir þessum lýð.
24
Menn munu falla fyrir sverðseggjum og verða herleiddir til allra þjóða og framandi þjóðir munu fótum troða Jerúsalem þar til tímar heiðingjanna eru liðnir.
25
Tákn munu verða á sólu, tungli og stjörnum og á jörðu angist þjóða, ráðalausra við dunur hafs og brimgný.
26
Menn munu falla í öngvit af ótta og kvíða fyrir því er koma mun yfir heimsbyggðina því að kraftar himnanna munu riðlast.
27
Þá munu menn sjá Mannssoninn koma í skýi með mætti og mikilli dýrð.
28
En þegar þetta tekur að koma fram, þá réttið úr yður og berið höfuðið hátt því að lausn yðar er í nánd.“
29
Jesús sagði þeim og líkingu: „Gætið að fíkjutrénu og öðrum trjám.
30
Þegar þér sjáið þau farin að bruma, þá vitið þér af sjálfum yður að sumarið er í nánd.
31
Eins skuluð þér vita, þegar þér sjáið þetta verða, að Guðs ríki er í nánd.
32
Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok uns allt er komið fram.
33
Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða.
34
Hafið gát á sjálfum yður, látið ekki svall og drykkju eða áhyggjur þessa lífs ná tökum á yður svo að sá dagur komi ekki skyndilega yfir yður
35
eins og snara. En hann mun koma yfir alla menn sem byggja gjörvalla jörð.
36
Vakið því allar stundir og biðjið svo að þér megið umflýja allt þetta sem koma á og standast frammi fyrir Mannssyninum.“
37
Á daginn var Jesús að kenna í helgidóminum en fór og dvaldist um nætur á Olíufjallinu sem svo er nefnt.
38
Og allt fólkið kom árla á morgnana til hans í helgidóminn að hlýða á hann.
← Chapter 20
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 22 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24