bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Mark 3
Mark 3
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 2
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 4 →
1
Öðru sinni gekk Jesús í samkunduhús. Þar var maður með visna hönd
2
og höfðu þeir nánar gætur á Jesú hvort hann læknaði hann á hvíldardegi. Þeir hugðust kæra hann.
3
Og Jesús segir við manninn með visnu höndina: „Statt upp og kom hér fram!“
4
Síðan spyr hann þá: „Hvort er heldur leyfilegt að gera gott eða gera illt á hvíldardegi, bjarga lífi eða deyða?“ En þeir þögðu.
5
Og Jesús leit á þá með reiðisvip, hvern á eftir öðrum, sárhryggur yfir harðúð hjartna þeirra og sagði við manninn: „Réttu fram hönd þína.“ Hann rétti fram höndina og hún varð heil.
6
Þá gengu farísearnir út og tóku þegar með Heródesarsinnum saman ráð sín gegn honum, hvernig þeir gætu náð lífi hans.
7
Jesús fór með lærisveinum sínum út að vatninu og fylgdi mikill fjöldi úr Galíleu og úr Júdeu,
8
frá Jerúsalem, Ídúmeu, landinu handan Jórdanar, og úr byggðum Týrusar og Sídonar kom til hans fjöldi manna er heyrt höfðu hve mikið hann gerði.
9
Og Jesús bauð lærisveinum sínum að hafa til bát fyrir sig svo að mannfjöldinn þrengdi eigi að honum.
10
En marga hafði hann læknað og því þustu að honum allir þeir sem einhver mein höfðu til að snerta hann.
11
Og hvenær sem menn, sem haldnir voru óhreinum öndum, sáu hann féllu þeir fram fyrir honum og æptu upp: „Þú ert sonur Guðs.“
12
En Jesús lagði ríkt á við þá að þeir gerðu hann eigi kunnan.
13
Síðan fór Jesús til fjalls og kallaði til sín þá er hann sjálfur kaus og þeir komu til hans.
14
Hann skipaði tólf er skyldu vera með honum og hann gæti sent út að prédika
15
og gefið þeim vald til að reka út illa anda.
16
Jesús skipaði þá tólf: Símon, er hann gaf nafnið Pétur,
17
Jakob Sebedeusson og Jóhannes bróður hans, en þeim gaf hann nafnið Boanerges, sem þýðir þrumusynir,
18
og Andrés, Filippus og Bartólómeus, Matteus og Tómas, Jakob Alfeusson, Taddeus og Símon vandlætara
19
og Júdas Ískaríot, þann er sveik hann.
20
Þegar Jesús kemur heim safnast þar aftur mannfjöldi svo þeir gátu ekki einu sinni matast.
21
Hans nánustu fréttu það og fóru út og vildu ná honum enda sögðu þeir að hann væri frá sér.
22
Og fræðimennirnir, er komnir voru ofan frá Jerúsalem, sögðu: „Beelsebúl er í honum. Með fulltingi höfðingja illra anda rekur hann út illu andana.“
23
En Jesús kallaði þá til sín og mælti við þá í líkingum: „Hvernig getur Satan rekið Satan út?
24
Verði ríki sjálfu sér sundurþykkt fær það ríki eigi staðist
25
og verði heimili sjálfu sér sundurþykkt fær það heimili eigi staðist.
26
Sé nú Satan risinn gegn sjálfum sér og orðinn sér sundurþykkur fær hann ekki staðist, þá er úti um hann.
27
Enginn getur brotist inn í hús hins sterka og rænt eigum hans nema hann bindi áður hinn sterka, þá getur hann rænt hús hans.
28
Sannlega segi ég ykkur: Allt verður mannanna börnum fyrirgefið, allar syndir þeirra og lastmælin, hve mjög sem þau kunna að lastmæla,
29
en sá sem lastmælir gegn heilögum anda fær eigi fyrirgefningu um aldur, hann er sekur um eilífa synd.“
30
En þeir höfðu sagt: „Óhreinn andi er í honum.“
31
Nú koma móðir Jesú og bræður, standa úti og gera honum orð að koma.
32
Mikill fjöldi sat í kringum hann og var honum sagt: „Móðir þín, bræður og systur eru hér úti og spyrja eftir þér.“
33
Jesús svarar þeim: „Hver er móðir mín og bræður?“
34
Og hann leit á þau er kringum hann sátu og segir: „Hér er móðir mín og bræður mínir!
35
Hver sem gerir vilja Guðs, sá er bróðir minn, systir og móðir.“
← Chapter 2
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 4 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16