bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Micah 3
Micah 3
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 2
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 4 →
1
Ég sagði: Heyrið, höfðingjar Jakobs og leiðtogar Ísraels ættar. Vissulega áttuð þér að vita hvað rétt er.
2
En þér hatið það sem gott er og elskið það sem illt er, fláið af mönnum húðina, tætið hold af beinum þeirra.
3
Þeir eta hold þjóðar minnar, flá af skinnið og brjóta beinin, hluta holdið niður eins og kjöt í pott eða steik á pönnu.
4
Þeir munu hrópa til Drottins en hann mun ekki svara, heldur byrgja auglit sitt fyrir þeim því að verk þeirra voru ill.
5
Svo mælir Drottinn um spámennina sem villa um fyrir þjóð minni: Fyrir matartuggu boða þeir frið en stríð hverjum þeim sem engu stingur upp í þá.
6
Þess vegna mun nótt koma yfir yður en engar vitranir, myrkur en engir spádómar. Sól spámannanna mun setjast og dagar myrkvast.
7
Sjáendur verða sér til minnkunar og spásagnamenn hafðir að spotti. Allir munu þeir hylja andlit sitt því að Guð veitir þeim engin svör.
8
En mér hefur andi Drottins veitt fullan þrótt, réttsýni og hugrekki til að átelja Jakob fyrir brot hans og Ísrael fyrir synd hans.
9
Heyrið þetta, leiðtogar Jakobs ættar, höfðingjar Ísraels ættar, þér sem hafið andstyggð á réttlæti og hallið hverju því sem rétt er,
10
þér sem byggið Síon með blóði og Jerúsalem með ódæðisverkum
11
Höfðingjar hennar þiggja mútur fyrir dóma sína, prestar hennar fé fyrir ráð sín og spámenn hennar spá gegn gjaldi. Þó reiða þeir sig á Drottin og segja: „Er Drottinn ekki með oss? Engin ógæfa hendir oss.“
12
Af yðar sökum verður Síon plægð sem akur, Jerúsalem verður að rúst og musterisfjallið að kjarrivaxinni hæð.
← Chapter 2
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 4 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7