bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Obadiah 1
Obadiah 1
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Jump to:
Chapter 1
1
Vitrun Óbadía. Tíðindi hafa borist frá Drottni og boðberi er sendur til þjóðanna: „Komum nú. Herjum á Edómíta.“ Svo segir Drottinn Guð um Edóm:
2
Þig geri ég smæstan meðal þjóða, þú verður fyrirlitinn mjög.
3
Hroki hjarta þíns hefur dregið þig á tálar, þú sem býrð í klettaskorum, átt dvalarstað á hæðum uppi og segir í hjarta þínu: „Hver getur steypt mér til jarðar?“
4
Þótt þú svífir eins hátt og örninn og gerir þér hreiður meðal stjarnanna mun ég steypa þér niður, segir Drottinn.
5
Komi þjófar að þér, ræningjar að næturþeli, þá stela þeir ekki umfram þörf sína. Komi vínyrkjumenn til þín munu þeir eftirláta þér eftirtínsluna. Hve algjör er eyðing þín orðin.
6
Hve þaulrannsakaður verður Esaú og fólgin auðæfi hans leituð uppi.
7
Allir bandamenn þínir hrekja þig allt að landamærunum, lagsmenn þínir villa um fyrir þér og bera þig ofurliði og mötunautar þínir hafa lagt snörur fyrir þig.
8
Á þeim degi, segir Drottinn, eyði ég hinum vitru í Edóm og viskunni af fjalli Esaú. Og hyggindi hans mun þrjóta.
9
Kappar þínir, Teman, skulu skelfast. Á fjalli Esaú mun enginn lifa manndrápin af.
10
Sakir ofbeldisverka þinna gegn Jakob, bróður þínum, mun smánin hvolfast yfir þig og þú tortímast að eilífu.
11
Þann dag sem þú lést afskiptalaust að aðkomumenn flyttu burt eigur hans, þegar útlendingar héldu inn um hlið hans og vörpuðu hlutkesti um Jerúsalem, varst þú sem einn af þeim.
12
Horfðu ekki meinfýsinn á örlög bróður þíns á degi ógæfu hans. Hlakkaðu ekki yfir þjóð Júda á degi tortímingar hennar. Sparaðu þér stóryrði á degi angistar hennar.
13
Ryðstu ekki inn um hlið þjóðar minnar á degi glötunar hennar. Hlakkaðu ekki með hinum yfir óförum hennar á degi glötunar hennar, seilstu ekki eftir eigum hennar á degi glötunar hennar.
14
Nem eigi staðar við vegamótin til að drepa flóttamenn hennar og framseldu ekki þá er undan komast á degi neyðarinnar.
15
Dagur Drottins vofir yfir öllum þjóðum. Eins og þú breyttir við aðra, þannig verður breytt við þig. Verk þín munu koma sjálfum þér í koll.
16
Eins og þér drukkuð á helgu fjalli mínu, þannig munu allar þjóðir ævinlega drekka. Þær munu drekka og drekka stórum og verða eins og þær hefðu aldrei verið til.
17
En á Síonarfjalli munu menn komast af og það skal verða heilagt og Jakobsniðjar munu endurheimta eigur sínar.
18
Ætt Jakobs verður sem eldur og ætt Jósefs sem bál en ætt Esaú verður að hálmi. Þeir munu kveikja í honum og eyða og enginn mun undan komast af niðjum Esaú því að svo hefur Drottinn mælt.
19
Sunnlendingar munu fá fjall Esaú til eignar og íbúar vesturhlíðanna Filisteu. Og þeir munu eignast Efraímsland og Samaríuhérað en Benjamín Gíleað.
20
Brottfluttir hermenn Ísraels munu taka lönd Kanverja til eignar allt til Sarefta og útlagarnir frá Jerúsalem, sem dveljast í Sefarad, munu eignast borgir Suðurlandsins.
21
Sem bjargvættir munu þeir halda upp til Síonarfjalls og dæma þaðan fjall Esaú og Drottinn hlýtur konungdæmið.
Jump to:
Chapter 1
All chapters:
1