bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Romans 3
Romans 3
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 2
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 4 →
1
Hvað hefur þá Gyðingurinn fram yfir aðra? Eða hvert er gagn umskurnarinnar?
2
Mikið á allan hátt. Fyrst og helst er það að Guð hefur trúað Gyðingum fyrir orðum sínum.
3
Sumir þeirra hafa brugðist. Hvað um það? Getur það gert trúfesti Guðs að engu?
4
Fjarri fer því. Guð skal reynast sannorður þótt sérhver maður reyndist lygari. Eins og ritað er: „Til þess að þú reynist réttlátur í orðum þínum og vinnir þegar þú átt mál að verja.“
5
En ef ranglæti okkar staðfestir réttlæti Guðs hvað eigum við þá að segja? Skyldi Guð, svo að ég tjái mig eins og menn gera, vera ranglátur þegar hann tjáir reiði sína?
6
Fjarri fer því. Hvernig mætti Guð þá dæma heiminn?
7
En verði sannleiki Guðs skýrari, honum til dýrðar, við að sýna að ég er lygari, hvers vegna á ég þá að dæmast sem syndari?
8
Eigum við þá ekki að gera hið illa til þess að hið góða komi fram? Sumir bera mig þeim óhróðri að ég kenni þetta. Þeir munu fá verðskuldaðan dóm.
9
Hvað þá? Höfum við Gyðingar þá nokkuð fram yfir aðra? Nei, alls ekki. Ég hef áður lýst sömu sök á hendur Gyðingum jafnt sem Grikkjum, að þeir væru allir á valdi syndarinnar.
10
Eins og ritað er: Enginn er réttlátur, ekki einn,
11
enginn er vitur, enginn sem leitar Guðs.
12
Allir hafa þeir villst af vegi, allir eru spilltir. Enginn er sá er gerir hið góða, ekki neinn.
13
Opin gröf er kok þeirra, með tungum sínum draga þeir á tálar. Höggormaeitur er innan vara þeirra,
14
munnur þeirra er fullur bölvunar og beiskju.
15
Hvatir eru þeir í spori að úthella blóði.
16
Auðn og eymd er í slóð þeirra
17
og veg friðarins þekkja þeir ekki.
18
Guðsótti er enginn til í huga þeirra.
19
Við vitum að allt, sem lögmálið segir, er þeim ætlað sem fengu lögmálið til þess að sérhver munnur þagni og allur heimur verði að svara til saka fyrir Guði.
20
Enginn maður réttlætist fyrir Guði með verkum í hlýðni við lögmálið en lögmálið kennir hvað sé synd.
21
En nú hefur Guð opinberað réttlæti sitt sem lögmálið og spámennirnir vitna um og byggist ekki á lögmáli.
22
Það er: Réttlæti trúarinnar sem Guð gefur öllum þeim sem trúa á Jesú Krist. Hér er enginn greinarmunur:
23
Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð
24
og Guð réttlætir þá, án þess nokkur verðskuldi það, af náð með endurlausn sinni í Kristi Jesú.
25
Guð bendir á blóð hans sem sáttarfórn þeim sem trúa. Þannig sýnir hann réttlæti sitt. Hann hafði umborið þær syndir sem áður voru drýgðar
26
til þess að birta réttlæti sitt á yfirstandandi tíma, að hann er sjálfur réttlátur og réttlætir þann sem trúir á Jesú.
27
Hver getur þá hrósað sér? Enginn. Eða af hvaða lögmáli ætti það að vera? Verkanna? Nei, heldur af lögmáli trúar.
28
Ég álít að maðurinn réttlætist af trú án lögmálsverka.
29
Eða er Guð einungis Guð Gyðinga? Ekki líka heiðingja?
30
Jú, líka heiðingja, svo sannarlega sem Guð er einn og réttlætir jafnt umskorna menn af trú og óumskorna fyrir sömu trú.
31
Geri ég þá lögmálið að engu með trúnni? Öðru nær. Ég staðfesti lögmálið.
← Chapter 2
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 4 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16