bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Numbers 23
Numbers 23
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 22
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 24 →
1
Þá mælti Bíleam við Balak: “Gjör þú mér hér sjö ölturu og fá mér hingað sjö uxa og sjö hrúta.”
2
Og Balak gjörði sem Bíleam sagði, og Balak og Bíleam fórnuðu uxa og hrút á altari hverju.
3
Bíleam sagði við Balak: “Statt þú hér hjá brennifórn þinni, ég ætla að ganga burt. Vera má að Drottinn kunni að koma til móts við mig, en hvað sem hann birtir mér, skal ég tjá þér.” Fór hann þá upp á skóglausa hæð.
4
Og Guð kom til móts við Bíleam, og Bíleam sagði við hann: “Ég hefi búið sjö ölturu og fórnað uxa og hrút á hverju altari.”
5
Drottinn lagði þá Bíleam orð í munn og sagði: “Far þú aftur til Balaks, og mæl svo sem ég segi þér.”
6
Fór hann þá aftur til hans. Og sjá, hann stóð hjá brennifórn sinni og allir höfðingjar Móabs með honum.
7
Flutti hann þá kvæði sitt og mælti: Til Mesópótamíu lét Balak sækja mig, konungur Móabs, til hinna austlægu fjalla. “Kom þú, bölva Jakob fyrir mig, kom þú, formæl Ísrael!”
8
Hvernig má ég biðja bölbæna þeim, er Guð eigi biður bölbæna, og hvernig má ég formæla þeim, er Drottinn eigi formælir?
9
Af fjallstindinum sé ég hann, og af hæðunum lít ég hann. Hann er þjóðflokkur, sem býr einn sér og telur sig eigi meðal hinna þjóðanna.
10
Hver mun telja mega duft Jakobs, og hver mun fá tölu komið á fjöld Ísraels? Deyi önd mín dauða réttlátra og verði endalok mín sem þeirra.
11
Þá sagði Balak við Bíleam: “Hvað hefir þú gjört mér? Ég fékk þig til þess að biðja óvinum mínum bölbæna, og sjá, þú hefir margblessað þá.”
12
En Bíleam svaraði og sagði: “Hvort hlýt ég eigi að mæla það eitt, er Drottinn leggur mér í munn?”
13
Þá sagði Balak við Bíleam: “Kom með mér á annan stað, þar er þú mátt sjá þá, - þó munt þú aðeins fá séð ysta hluta þeirra, alla munt þú eigi sjá þá, - og bið þeim þar bölbæna fyrir mig.”
14
Og hann tók hann með sér upp á Njósnarvöll, upp á Pisgatind, og reisti þar sjö ölturu og fórnaði.
15
Þá mælti Bíleam við Balak: “Statt þú hér hjá brennifórn þinni, meðan ég fer þangað til móts við Guð.”
16
Drottinn kom til móts við Bíleam og lagði honum orð í munn og sagði: “Far þú aftur til Balaks, og mæl svo sem ég segi þér.”
17
Gekk hann þá til hans, og sjá, hann stóð hjá brennifórn sinni og höfðingjar Móabs með honum. Og Balak mælti við hann: “Hvað sagði Drottinn?”
18
Flutti Bíleam þá kvæði sitt og mælti: Rís þú upp, Balak, og hlýð á! Hlusta þú á mig, Sippórs sonur!
19
Guð er ekki maður, að hann ljúgi, né sonur manns, að hann sjái sig um hönd. Skyldi hann segja nokkuð og gjöra það eigi, tala nokkuð og efna það eigi?
20
Sjá, að blessa var mér falið, fyrir því blessa ég og tek það eigi aftur.
21
Eigi sést óheill með Jakob, né heldur má mein líta með Ísrael. Drottinn, Guð hans, er með honum, og konungsfögnuður er hjá honum.
22
Sá Guð, sem leiddi þá af Egyptalandi, er honum sem horn vísundarins.
23
Því að eigi er galdur með Jakob né fjölkynngi með Ísrael. Nú verður það eitt sagt um Jakob og Ísrael: Hversu mikla hluti hefir Guð gjört!
24
Hann er þjóðflokkur, sem rís upp eins og ljónynja og reisir sig sem ljón, hann leggst ekki niður fyrr en hann hefir etið bráð og drukkið blóð veginna manna.
25
Þá sagði Balak við Bíleam: “Þú skalt hvorki biðja honum bölbæna né blessa hann.”
26
En Bíleam svaraði og sagði við Balak: “Hefi ég ekki sagt þér: ‘Allt það, sem Drottinn býður, það mun ég gjöra’?”
27
Þá mælti Balak við Bíleam: “Kom þú, ég vil fara með þig á annan stað. Vera má að Guði þóknist, að þú biðjir þeim þar bölbæna fyrir mig.”
28
Tók Balak þá Bíleam með sér upp á Peórtind, sem mænir yfir öræfin.
29
Þá mælti Bíleam við Balak: “Gjör þú mér hér sjö ölturu og fá mér hingað sjö uxa og sjö hrúta.”
30
Og Balak gjörði sem Bíleam mælti og fórnaði uxa og hrút á altari hverju.
← Chapter 22
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 24 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36