bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Numbers 25
Numbers 25
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 24
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 26 →
1
Meðan Ísrael dvaldi í Sittím, tók lýðurinn að drýgja hór með Móabs dætrum.
2
Buðu þær lýðnum til fórnarmáltíða goða sinna, og lýðurinn át og tilbað goð þeirra.
3
Og Ísrael hafði mök við Baal Peór. Upptendraðist þá reiði Drottins gegn Ísrael.
4
Drottinn sagði við Móse: “Tak með þér alla höfðingja lýðsins og líflát þá úti undir berum himni fyrir Drottni, svo að hin ákafa reiði Drottins hverfi í brott frá Ísrael.”
5
Móse sagði þá við dómarana í Ísrael: “Drepi nú hver um sig þá af sínum mönnum, er mök hafa haft við Baal Peór.”
6
Sjá, einn af Ísraelsmönnum kom og hafði með sér midíanska konu til bræðra sinna í augsýn Móse og alls safnaðar Ísraelsmanna, er þeir voru grátandi fyrir dyrum samfundatjaldsins.
7
En er Pínehas, sonur Eleasars Aronssonar prests, sá það, gekk hann fram úr söfnuðinum og tók spjót í hönd sér.
8
Fór hann á eftir Ísraelsmanninum inn í svefnhýsið og lagði þau bæði í gegn, Ísraelsmanninn og konuna, gegnum kviðinn. Staðnaði þá plágan meðal Ísraelsmanna.
9
En þeir sem dóu í plágunni, voru tuttugu og fjórar þúsundir.
10
Drottinn talaði við Móse og sagði:
11
“Pínehas, sonur Eleasars Aronssonar prests, hefir bægt reiði minni frá Ísraelsmönnum með því að vandlæta meðal þeirra með mínu vandlæti. Hefi ég því eigi gjöreytt Ísraelsmönnum í vandlæti mínu.
12
Seg því: ‘Sjá, ég gef honum minn friðarsáttmála.
13
Hann og niðjar hans eftir hann skulu hljóta sáttmála ævarandi prestdóms fyrir það, að hann vandlætti vegna Guðs síns og friðþægði fyrir Ísraelsmenn.’”
14
Hinn vegni Ísraelsmaður, sá er veginn var ásamt midíönsku konunni, hét Simrí Salúson. Var hann höfðingi eins ættleggs meðal Símeoníta.
15
Og midíanska konan, sem vegin var, hét Kosbí Súrsdóttir, en hann var höfðingi yfir ættstofni einum í Midían.
16
Og Drottinn talaði við Móse og sagði: “Kreppið að Midíansmönnum og fellið þá,
17
því að þeir hafa komið yður í krappan stað með brögðum þeim, er þeir beittu yður, bæði að því er snertir dýrkun Peórs og systur þeirra, Kosbí, dóttur midíanska höfðingjans, hennar sem vegin var, þá er plágan reið yfir sökum dýrkunar Peórs.”
← Chapter 24
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 26 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36