bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Zechariah 1
Zechariah 1
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 2 →
1
Á áttunda mánuði annars ríkisárs Daríusar kom orð Drottins til Sakaría spámanns Berekíasonar, Iddósonar, svo hljóðandi:
2
Drottinn var stórreiður feðrum yðar.
3
Seg því við þá: Svo segir Drottinn allsherjar: Snúið yður til mín - segir Drottinn allsherjar - þá mun ég snúa mér til yðar - segir Drottinn allsherjar.
4
Verið ekki eins og feður yðar, sem hinir fyrri spámenn áminntu með svofelldum orðum: “Svo segir Drottinn allsherjar: Snúið yður frá yðar vondu breytni og frá yðar vondu verkum!” En þeir hlýddu ekki og gáfu engan gaum að mér - segir Drottinn.
5
Feður yðar - hvar eru þeir? Og spámennirnir - geta þeir lifað eilíflega?
6
En orð mín og ályktanir, þau er ég bauð þjónum mínum, spámönnunum, að kunngjöra, hafa þau ekki náð feðrum yðar, svo að þeir sneru við og sögðu: “Eins og Drottinn allsherjar hafði ásett sér að gjöra við oss eftir breytni vorri og verkum vorum, svo hefir hann við oss gjört”?
7
Á tuttugasta og fjórða degi hins ellefta mánaðar, það er mánaðarins sebat, á öðru ríkisári Daríusar, kom orð Drottins til Sakaría spámanns Berekíasonar, Iddósonar, svo hljóðandi:
8
Ég sá sýn á náttarþeli: mann ríðandi á rauðum hesti, og hafði hann staðnæmst meðal mýrtustrjánna, sem eru í dalverpinu. Að baki honum voru rauðir, jarpir og hvítir hestar.
9
Og er ég spurði: “Hverjir eru þessir, herra minn?” svaraði engillinn mér, sá er við mig talaði: “Ég skal sýna þér, hverjir þeir eru.”
10
Þá tók maðurinn, sem staðnæmst hafði meðal mýrtustrjánna, til máls og sagði: “Þessir eru þeir, sem Drottinn hefir sent til þess að fara um jörðina.”
11
Þá svöruðu þeir engli Drottins, er staðnæmst hafði meðal mýrtustrjánna, og sögðu: “Vér höfum farið um jörðina, og sjá, öll jörðin er í ró og kyrrð.”
12
Þá svaraði engill Drottins og sagði: “Drottinn allsherjar, hversu lengi á því fram að fara, að þú miskunnir þig ekki yfir Jerúsalem og Júdaborgir, er þú hefir nú reiður verið í sjötíu ár?”
13
Þá svaraði Drottinn englinum, er við mig talaði, blíðum orðum og huggunarríkum,
14
og engillinn sem við mig talaði, sagði við mig: “Kunngjör og seg: Svo segir Drottinn allsherjar: Ég brenn af mikilli vandlæting vegna Jerúsalem og Síonar
15
og ég er stórreiður hinum andvaralausu heiðingjum, sem juku á bölið, þá er ég var lítið eitt reiður.
16
Fyrir því segir Drottinn svo: Ég sný mér aftur að Jerúsalem með miskunnsemi. Hús mitt skal verða endurreist í henni - segir Drottinn allsherjar - og mælivaður skal þaninn verða yfir Jerúsalem.
17
Kunngjör enn fremur og seg: Svo segir Drottinn allsherjar: Enn skulu borgir mínar fljóta í gæðum, og enn mun Drottinn hugga Síon og enn útvelja Jerúsalem.”
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 2 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
Recommended Reading
Commentary
Zechariah Commentaries
→
Devotional
Zechariah Devotional Guide
→
Get This Bible
1981 Study Bible
→