bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
/
Zechariah 5
Zechariah 5
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 6 →
1
Ég hóf aftur upp augu mín og sá bókrollu, sem var á flugi.
2
Þá sagði hann við mig: “Hvað sér þú?” Ég svaraði: “Ég sé bókrollu á flugi, tuttugu álna langa og tíu álna breiða.”
3
Þá sagði hann við mig: “Þetta er bölvunin, sem út gengur yfir gjörvallt landið, því að sérhverjum sem stelur, verður samkvæmt henni sópað héðan, og sérhverjum sem meinsæri fremur, verður samkvæmt henni sópað héðan.”
4
Ég hefi látið hana út ganga - segir Drottinn allsherjar - til þess að hún komi inn í hús þjófsins og inn í hús þess, sem meinsæri fremur við nafn mitt, og staðnæmist inni í húsi hans og eyði því bæði að viðum og veggjum.
5
Þessu næst gekk fram engillinn, er við mig talaði, og sagði við mig: “Hef upp augu þín og sjá, hvað þar kemur fram!”
6
Ég sagði: “Hvað er þetta?” Þá sagði hann: “Þetta er efan, sem kemur í ljós.” Þá sagði hann: “Þetta er misgjörð þeirra í öllu landinu.”
7
Þá lyftist allt í einu upp kringlótt blýlok, og sat þar kona ein niðri í efunni.
8
Þá sagði hann: “Þetta er Vonskan!” - kastaði henni ofan í efuna og kastaði blýlokinu ofan yfir opið.
9
Síðan hóf ég upp augu mín og sá allt í einu tvær konur koma fram, og stóð vindur undir vængi þeim - því að þær höfðu vængi sem storksvængi - og hófu þær efuna upp milli jarðar og himins.
10
Þá sagði ég við engilinn, sem við mig talaði: “Hvert fara þær með efuna?”
11
Hann svaraði mér: “Þær ætla að reisa henni hús í Sínearlandi, og þegar það er búið, þá setja þær hana þar á sinn stað.”
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 6 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14