bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
2 Samuel 22
2 Samuel 22
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 21
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 23 →
1
Davíð flutti Drottni þetta ljóð þegar hann hafði bjargað Davíð úr greipum allra fjandmanna hans og úr greipum Sáls. Hann sagði:
2
Drottinn, bjarg mitt og vígi, frelsari minn.
3
Guð minn, hellubjarg mitt þar sem ég leita hælis, skjöldur minn og horn hjálpræðis míns, háborg mín og hæli, frelsari minn sem bjargar mér undan ofríki.
4
Lofaður sé Drottinn, hrópa ég og bjargast frá fjandmönnum mínum.
5
Holskeflur dauðans umluktu mig, eyðandi fljót skelfdu mig.
6
Bönd heljar herptust að mér, snörur dauðans ógnuðu mér.
7
Í angist minni kallaði ég á Drottin, til Guðs míns hrópaði ég. Hann heyrði hróp mitt í helgidómi sínum, óp mitt barst honum til eyrna.
8
Þá skalf jörðin og nötraði, undirstöður himinsins skulfu, þær nötruðu því að hann var reiður.
9
Reyk lagði úr nösum hans, eyðandi eld úr munni hans, eldslogar gengu út frá honum.
10
Hann sveigði himininn og steig niður og skýsorti var undir fótum hans.
11
Hann steig á bak kerúb og flaug af stað, hann birtist á vængjum vindsins.
12
Hann sveipaði sig myrkri, regnskýjum og skýsorta eins og tjaldi.
13
Úr ljóma hans hrutu eldneistar.
14
Þá þrumaði Drottinn af himni, Hinn hæsti lét raust sína gjalla.
15
Hann skaut örvum á víð og dreif, slöngvaði eldingum og tvístraði þeim.
16
Þá sá í mararbotn, undirstöður jarðar birtust vegna ógnandi heiftar Drottins og blástursins úr nösum hans.
17
Hann rétti hönd sína af himni og greip mig, dró mig upp úr þessu fimbulvatni,
18
bjargaði mér undan hinum öfluga fjandmanni, undan hatursmönnum mínum sem voru mér máttugri.
19
Þeir réðust gegn mér á óheilladegi mínum en Drottinn reyndist mér stoð.
20
Hann leiddi mig út á víðavang, leysti mig úr áþján því að hann hefur mætur á mér.
21
Drottinn launaði mér réttlæti mitt, endurgalt mér hreinleika handa minna
22
því að ég vék ekki af vegi Drottins og brást ekki Guði mínum.
23
Af því að öll boð hans voru mér fyrir augum og ég hafnaði ekki lögum hans
24
var ég flekklaus frammi fyrir honum. Ég varaðist að syndga,
25
þess vegna launaði Drottinn mér réttlæti mitt því að ég er hreinn í augum hans.
26
Þú ert trúum trúr, ráðvöndum ráðvandur,
27
einlægur einlægum, en andsnúinn svikurum.
28
Þú frelsar undirokaða en hefur augu á hinum hrokafullu og auðmýkir þá.
29
Já, þú ert lampi minn, Drottinn. Drottinn lýsir mér í myrkrinu.
30
Með þinni hjálp brýt ég borgarveggi, með Guði mínum stekk ég yfir múra.
31
Vegur Guðs er lýtalaus, orð Drottins er áreiðanlegt, skjöldur er hann öllum sem leita hælis hjá honum.
32
Hver er Guð nema Drottinn? Hver er bjarg nema Guð vor?
33
Guð er mitt trausta vígi, hann greiddi mér götu sína.
34
Hann gerir fót minn fráan sem hindarinnar, veitir mér fótfestu á hæðunum.
35
Hann þjálfar hendur mínar til hernaðar, arma mína til að spenna eirbogann.
36
Þú gerðir hjálp þína að skildi mínum, heit þitt gerði mig mikinn.
37
Þú rýmdir fyrir skrefum mínum og ökklar mínir riðuðu ekki.
38
Ég elti fjandmenn mína og upprætti þá og sneri ekki aftur fyrr en ég hafði eytt þeim.
39
Ég eyddi þeim, molaði þá sundur svo að þeir risu ekki upp aftur og lágu undir fótum mínum.
40
Þú gyrtir mig styrkleika til hernaðar, beygðir fjandmenn mína undir mig.
41
Þú hraktir fjandmenn mína á flótta, ég eyddi hatursmönnum mínum.
42
Þeir hrópuðu en enginn kom til hjálpar, hrópuðu til Drottins en hann svaraði ekki.
43
Ég muldi þá, þeir urðu sem ryk, tróð þá undir fótum eins og skarn á götu.
44
Þú bjargaðir mér úr átökum þjóðar minnar, gerðir mig að leiðtoga þjóðanna. Þjóð, sem ég þekkti ekki áður, þjónar mér.
45
Framandi menn smjaðra fyrir mér, hlýða mér um leið og þeir heyra í mér.
46
Framandi menn missa máttinn, koma skjálfandi úr fylgsnum sínum.
47
Drottinn lifir. Lofað sé bjarg mitt. Guð, klettur hjálpræðis míns, sé upphafinn,
48
Guð veitir mér hefnd, leggur þjóðir undir mig,
49
lætur mig komast undan fjandmönnum mínum. Þú hefur mig yfir andstæðinga mína, frelsar mig frá ofbeldismönnum.
50
Þess vegna vegsama ég þig meðal þjóðanna, Drottinn, lofsyng nafn þitt.
51
Hann veitir konungi sínum mikla sigra, auðsýnir sínum smurða trúfesti, Davíð og niðjum hans ævinlega.
← Chapter 21
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 23 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24