bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
2 Samuel 23
2 Samuel 23
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 22
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 24 →
1
Síðustu orð Davíðs hljóða svo: Svo segir Davíð, sonur Ísaí, þannig mælir maðurinn sem hátt var settur, hinn smurði Guðs Jakobs sem lofaður var í ljóðum Ísraels:
2
Andi Drottins talaði af munni mínum, orð hans var mér á tungu.
3
Guð Ísraels talaði, klettur Ísraels sagði við mig: „Sá sem ríkir í réttlæti, sá sem ríkir með lotningu fyrir Drottni,
4
hann er eins og dagsbirtan þegar sólin rís á heiðum morgni, þegar grængresið sprettur eftir regnskúr.“
5
Er ekki ætt mín studd af Guði? Því að hann hefur gert við mig ævarandi sáttmála þar sem allt er í föstum skorðum. Já, allt sem var mér til heilla, allt sem ég óskaði, lét hann dafna.
6
En illmennin eru öll eins og þyrnar sem kastað er út því að enginn tekur á þeim með hendinni.
7
Ef einhver ætlar að snerta þau vopnast hann sverði og spjóti, þau verða brennd í eldi.
8
Þetta eru nöfnin á hetjum Davíðs: Ísbaal Hakmóníti var foringi hinna þriggja. Það var hann sem sveiflaði spjóti sínu og felldi átta hundruð menn í einu.
9
Næstur honum á meðal hinna þriggja hetja var Eleasar, sonur Dódó frá Akía. Hann var með Davíð í Pas Dammím þegar Filistear söfnuðust þar saman til bardaga. Þegar Ísraelsmenn
10
hörfuðu stóð hann fastur fyrir og hjó Filisteana niður þar til hann þreyttist í hendinni og hönd hans var kreppt föst um sverðið. Þann dag veitti Drottinn mikinn sigur. Herinn sneri aftur með honum, þó aðeins til að taka herfang.
11
Næstur honum var Samma Hararíti, sonur Age. Einhverju sinni höfðu Filistear safnast saman við Lekí. Þar var akurspilda alsprottin linsubaunum. Þegar herinn flýði fyrir Filisteum
12
nam hann staðar á miðjum akrinum og varði hann og hjó Filisteana niður. Þannig veitti Drottinn mikinn sigur.
13
Einu sinni fóru þrír af hinum þrjátíu í byrjun uppskerunnar niður eftir til Davíðs í Adúllamhelli. Flokkur Filistea var þá í herbúðum í Refaímdal,
14
Davíð í fjallavirkinu en framvarðarsveit Filistea í Betlehem.
15
Þá varð Davíð mjög þyrstur og spurði: „Hver vill sækja mér vatn úr brunninum við borgarhliðið í Betlehem?“
16
Þá brutust kapparnir þrír inn í herbúðir Filistea og sóttu vatn í brunninn við borgarhliðið í Betlehem. Þeir tóku það með sér og færðu Davíð en hann vildi ekki drekka heldur dreypti því í dreypifórn handa Drottni
17
og sagði: „Drottinn, það sé fjarri mér að gera slíkt. Á ég að drekka blóð þessara manna sem hættu lífi sínu til að sækja það?“ Þess vegna vildi hann ekki drekka það. Þetta afrek unnu kapparnir þrír.
18
Abísaí Serújuson, bróðir Jóabs, var foringi hinna þrjátíu. Hann sveiflaði spjóti sínu og felldi þrjú hundruð menn. Hann var virtur af hinum þremur köppum.
19
Hann var mikils metinn af þeim þrjátíu og varð foringi þeirra en hann jafnaðist ekki á við hina þrjá.
20
Benaja Jójadason frá Kabseel var hraustur maður sem vann mörg afreksverk. Hann drap báða syni Aríels frá Móab. Eitt sinn, þegar snjóað hafði, fór hann niður í gryfju og drap þar ljón.
21
Hann drap einnig risavaxinn Egypta. Egyptinn hafði spjót í hendi en Benaja fór á móti honum með staf, reif spjótið úr hendi Egyptans og drap hann með hans eigin spjóti.
22
Þessi afrek vann Benaja Jójadason og var virtur af köppunum þremur.
23
Hann var mikils metinn af þeim þrjátíu en hann jafnaðist ekki á við hetjurnar þrjár. Davíð setti hann yfir lífvörð sinn.
24
Asael, bróðir Jóabs, var einn hinna þrjátíu, enn fremur Elkanan, sonur Dódós frá Betlehem,
25
Samma frá Haród, Elíka frá Haród,
26
Heles frá Pelet, Íra, sonur Íkkess frá Tekóa,
27
Abíeser frá Anatót, Mebúnaí frá Húsa,
28
Salmón frá Ahó, Maharaí frá Netófa,
29
Heled frá Netófa, sonur Baana, Íttaí Ríbaíson frá Gíbeu í Benjamín,
30
Benaja frá Píraton, Híddaí frá Nahale-Gaas,
31
Abi Albon frá Bet Araba, Asmavet frá Bahúrím,
32
Eljahba frá Saalbón, Jasen frá Nún,
33
Jónatan, sonur Samma frá Harar, Ahíam, sonur Sarars frá Arar,
34
Elífelet, sonur Ahasbaí frá Maaka, Elíam, sonur Akítófels frá Gíló,
35
Hesró frá Karmel, Paaraí frá Arak,
36
Jígal, sonur Natans frá Sóba, Baní frá Gað,
37
Selek frá Ammón, Naharaí frá Beerót, hann var skjaldsveinn Jóabs, sonar Serúju,
38
Íra frá Jattír, Gareb frá Jattír,
39
Úría Hetíti. Þeir voru alls þrjátíu og sjö.
← Chapter 22
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 24 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
Recommended Reading
Commentary
2 Samuel Commentaries
→
Devotional
2 Samuel Devotional Guide
→
Get This Bible
2007 Study Bible
→