bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
2 Timothy 3
2 Timothy 3
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 2
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 4 →
1
En það skaltu vita að á síðustu dögum munu koma örðugar tíðir.
2
Menn verða sérgóðir, fégjarnir, raupsamir, hrokafullir, illmálgir, óhlýðnir foreldrum, vanþakklátir, guðlausir,
3
kærleikslausir, ósáttfúsir, rógberandi, taumlausir, grimmir og andsnúnir öllu góðu,
4
sviksamir, framhleypnir, drambsamir og elska munaðarlífið meira en Guð.
5
Þeir hafa á sér yfirskin guðhræðslunnar en afneita krafti hennar. Forðastu þá.
6
Úr hópi þeirra eru mennirnir sem smeygja sér inn á heimilin og véla kvensniftir sem syndum eru hlaðnar og leiðast af margvíslegum fýsnum.
7
Þær eru alltaf að reyna að læra en geta aldrei komist til þekkingar á sannleikanum.
8
Eins og þeir Jannes og Jambres stóðu í gegn Móse þannig standa þessir menn í gegn sannleikanum. Þeir eru menn hugspilltir og óhæfir í trúnni.
9
En þeim verður ekki ágengt því að heimska þeirra verður hverjum manni augljós eins og líka heimska hinna varð.
10
En þú hefur fylgt mér í kenningu, hegðun, ásetningi, trú, langlyndi, kærleika, þolgæði
11
í ofsóknum og þjáningum, slíkum sem ég varð fyrir í Antíokkíu, Íkóníum og Lýstru. Slíkar ofsóknir þoldi ég og Drottinn frelsaði mig úr þeim öllum.
12
Enda verða allir ofsóttir sem lifa vilja guðrækilega í Kristi Jesú.
13
En vondir menn og svikarar munu magnast í vonskunni, villa aðra og villast sjálfir.
14
En halt þú stöðuglega við það sem þú hefur numið og hefur fest trú á þar eð þú veist af hverjum þú hefur numið það.
15
Þú hefur frá blautu barnsbeini þekkt heilagar ritningar. Þær geta veitt þér speki til sáluhjálpar fyrir trúna á Krist Jesú.
16
Sérhver ritning er innblásin af Guði og nytsöm til fræðslu, umvöndunar, leiðréttingar og menntunar í réttlæti
17
til þess að sá sem trúir á Guð sé albúinn og hæfur ger til sérhvers góðs verks.
← Chapter 2
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 4 →
All chapters:
1
2
3
4