bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
2 Timothy 4
2 Timothy 4
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 3
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
1
Fyrir augliti Guðs og Krists Jesú, sem dæma mun lifendur og dauða, heiti ég á þig með endurkomu hans og ríki fyrir augum:
2
Prédika þú orðið, gef þig að því í tíma og ótíma. Vanda um, ávíta og uppörva með stöðugri þolinmæði og fræðslu.
3
Því að þann tíma mun að bera er menn þola ekki hina heilnæmu kenningu heldur hópa að sér kennurum eftir eigin fýsnum sínum til þess að heyra það sem kitlar eyrun.
4
Þeir munu snúa eyrum sínum burt frá sannleikanum og hverfa að kynjasögum.
5
En ver þú algáður í öllu, þol illt, ger verk fagnaðarboða, fullna þjónustu þína.
6
Nú er svo komið að mér verður fórnfært og tíminn er kominn að ég taki mig upp.
7
Ég hef barist góðu baráttunni, hef fullnað skeiðið, hef varðveitt trúna.
8
Og nú er mér geymdur sveigur réttlætisins sem Drottinn, hinn réttláti dómari, mun gefa mér á þeim degi. Og ekki einungis mér heldur og öllum sem þráð hafa endurkomu hans.
9
Reyndu að koma sem fyrst til mín
10
því að Demas hefur yfirgefið mig vegna þess að hann elskaði þennan heim. Hann er farinn til Þessaloníku. Kreskes er farinn til Galatíu og Títus til Dalmatíu.
11
Lúkas er einn hjá mér. Tak þú Markús með þér til mín. Hann er mér þarfur í þjónustunni.
12
Týkíkus hef ég sent til Efesus.
13
Fær þú mér, þegar þú kemur, möttulinn, sem ég skildi eftir í Tróas hjá Karpusi, og bækurnar, einkanlega skinnbækurnar.
14
Alexander koparsmiður gerði mér margt illt. Drottinn mun gjalda honum eftir verkum hans.
15
Gæt þín líka fyrir honum því að hann stóð mjög í gegn orðum okkar.
16
Í fyrstu málsvörn minni kom enginn mér til aðstoðar heldur yfirgáfu mig allir. Verði þeim það ekki tilreiknað.
17
En Drottinn stóð með mér og veitti mér kraft til þess að ég yrði til að fullna prédikunina og allar þjóðir fengju að heyra. Og ég varð frelsaður úr gini ljónsins.
18
Drottinn mun frelsa mig frá öllu illu og leiða mig hólpinn inn í sitt himneska ríki. Honum sé dýrð um aldir alda. Amen.
19
Heilsa þú Prisku og Akvílasi og heimili Ónesífórusar.
20
Erastus varð eftir í Korintu en Trófímus skildi ég eftir sjúkan í Míletus.
21
Flýt þér að koma fyrir vetur. Evbúlus sendir þér kveðju og Púdes og Línus og Kládía og allir bræðurnir.
22
Drottinn sé með þínum anda. Náð sé með yður.
← Chapter 3
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
All chapters:
1
2
3
4