bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
John 10
John 10
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 9
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 11 →
1
„Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem kemur ekki um dyrnar inn í sauðabyrgið heldur fer yfir annars staðar, hann er þjófur og ræningi
2
en sá sem kemur inn um dyrnar er hirðir sauðanna.
3
Dyravörðurinn lýkur upp fyrir honum og sauðirnir heyra raust hans og hann kallar á sína sauði með nafni og leiðir þá út.
4
Þegar hann hefur látið út alla sauði sína fer hann á undan þeim og þeir fylgja honum af því að þeir þekkja raust hans.
5
En ókunnugum fylgja þeir ekki, heldur flýja frá honum því þeir þekkja ekki raust ókunnugra.“
6
Þessa líkingu sagði Jesús þeim. En menn skildu ekki hvað það þýddi sem hann var að tala við þá.
7
Því sagði Jesús aftur: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Ég er dyr sauðanna.
8
Allir þeir sem á undan mér komu eru þjófar og ræningjar enda hlýddu sauðirnir þeim ekki.
9
Ég er dyrnar. Sá sem kemur inn um mig mun frelsast og hann mun ganga inn og út og finna haga.
10
Þjófurinn kemur ekki nema til að stela og slátra og eyða. Ég er kominn til þess að þeir hafi líf, líf í fyllstu gnægð.
11
Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina.
12
Sá sem er leigður og hvorki er hirðir né á sauðina, hann flýr og yfirgefur sauðina þegar hann sér úlfinn koma og úlfurinn hremmir þá og tvístrar þeim.
13
Enda gætir hann sauðanna aðeins fyrir borgun og er ekkert annt um þá.
14
Ég er góði hirðirinn og þekki mína og mínir þekkja mig
15
eins og faðirinn þekkir mig og ég þekki föðurinn. Ég legg líf mitt í sölurnar fyrir sauðina.
16
Ég á líka aðra sauði sem eru ekki úr þessu sauðabyrgi. Þá ber mér einnig að leiða, þeir munu heyra raust mína. Og það verður ein hjörð, einn hirðir.
17
Faðirinn elskar mig af því að ég legg líf mitt í sölurnar til þess að ég fái það aftur.
18
Enginn tekur það frá mér, ég legg það sjálfur í sölurnar. Ég hef vald til að leggja það í sölurnar og vald til að taka það aftur. Þetta hefur faðir minn boðið mér.“
19
Þessi orð urðu til þess að aftur kom upp ágreiningur með mönnum um Jesú.
20
Margir sögðu: „Hann hefur illan anda og er genginn af vitinu. Hvað eruð þið að hlusta á hann?“
21
Aðrir sögðu: „Þessi orð mælir enginn sá sem hefur illan anda. Mundi illur andi geta gefið blindum sýn?“
22
Nú var vígsluhátíðin í Jerúsalem og kominn vetur.
23
Jesús gekk um í súlnagöngum Salómons í helgidóminum.
24
Þá söfnuðust menn um hann og sögðu: „Hve lengi lætur þú okkur í óvissu? Ef þú ert Kristur, þá segðu okkur það berum orðum.“
25
Jesús svaraði þeim: „Ég hef sagt yður það en þér trúið ekki. Verkin, sem ég geri í nafni föður míns, vitna um mig
26
en þér trúið ekki því að þér eruð ekki úr hópi sauða minna.
27
Mínir sauðir heyra raust mína og ég þekki þá og þeir fylgja mér.
28
Ég gef þeim eilíft líf og þeir skulu aldrei að eilífu glatast og enginn skal slíta þá úr hendi minni.
29
Faðir minn, sem hefur gefið mér þá, er meiri en allir og enginn getur slitið þá úr hendi föðurins.
30
Ég og faðirinn erum eitt.“
31
Menn tóku aftur upp steina til að grýta hann.
32
Jesús mælti: „Ég hef sýnt yður mörg góð verk frá föður mínum. Fyrir hvert þeirra verka viljið þér grýta mig?“
33
Þeir svöruðu honum: „Við grýtum þig ekki fyrir góð verk heldur fyrir guðlast. Þú gerir sjálfan þig að Guði þótt þú sért aðeins maður.“
34
Jesús svaraði þeim: „Er ekki skrifað í lögmáli yðar: Ég hef sagt: Þér eruð guðir?
35
– og ritningin verður ekki felld úr gildi. Ef lögmálið nefnir þá guði sem Guðs orð kom til
36
segið þér þá við mig, sem faðirinn helgaði og sendi í heiminn, að ég guðlasti af því ég sagði: Ég er sonur Guðs?
37
Ef ég vinn ekki verk föður míns skuluð þér ekki trúa mér
38
en ef ég vinn þau, þá trúið verkunum þótt þér trúið mér ekki svo að þér skiljið og vitið að faðirinn er í mér og ég í föðurnum.“
39
Nú reyndu þeir aftur að grípa hann en hann gekk úr greipum þeirra.
40
Jesús fór aftur burt yfir um Jórdan þangað sem Jóhannes hafði fyrrum verið að skíra og var þar um kyrrt.
41
Margir komu til hans og sögðu: „Víst gerði Jóhannes ekkert tákn en allt er það satt sem hann sagði um þennan mann.“
42
Og þarna tóku margir trú á hann.
← Chapter 9
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 11 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21