bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
John 17
John 17
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 16
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 18 →
1
Þetta talaði Jesús, hóf augu sín til himins og sagði: „Faðir, stundin er komin. Ger son þinn dýrlegan til þess að sonurinn geri þig dýrlegan.
2
Þú gafst honum vald yfir öllum mönnum að hann gefi eilíft líf öllum þeim sem þú hefur gefið honum.
3
En það er hið eilífa líf að þekkja þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir, Jesú Krist.
4
Ég hef gert þig dýrlegan á jörðu með því að fullkomna það verk sem þú fékkst mér að vinna.
5
Faðir, ger mig nú dýrlegan hjá þér með þeirri dýrð sem ég hafði hjá þér áður en heimur var til.
6
Ég hef opinberað nafn þitt þeim mönnum sem þú gafst mér úr heiminum. Þeir voru þínir og þú gafst mér þá, og þeir hafa varðveitt þitt orð.
7
Þeir vita nú að allt sem þú hefur gefið mér er frá þér
8
því ég hef flutt þeim þau orð sem þú gafst mér. Þeir tóku við þeim og vita með sanni að ég er frá þér út genginn, og trúa því að þú hafir sent mig.
9
Ég bið fyrir þeim. Ég bið ekki fyrir heiminum heldur fyrir þeim sem þú hefur gefið mér því að þeir eru þínir
10
og allt mitt er þitt og þitt er mitt. Í þeim er ég dýrlegur orðinn.
11
Ég er ekki lengur í heiminum. Þeir eru í heiminum en ég kem til þín. Heilagi faðir, varðveit þá í þínu nafni, því nafni sem þú hefur gefið mér, svo að þeir verði eitt eins og við.
12
Meðan ég var hjá þeim varðveitti ég þá í nafni þínu sem þú hefur gefið mér, og gætti þeirra og enginn þeirra glataðist nema sonur glötunarinnar svo að ritningin rættist.
13
Nú kem ég til þín. Þetta tala ég í heiminum til þess að þeir eigi í sjálfum sér fögnuð minn fullkominn.
14
Ég hef gefið þeim orð þitt og heimurinn hataði þá af því að þeir eru ekki af heiminum, eins og ég er ekki af heiminum.
15
Ég bið ekki að þú takir þá úr heiminum heldur að þú varðveitir þá frá hinu illa.
16
Þeir eru ekki af heiminum, eins og ég er ekki af heiminum.
17
Helga þá í sannleikanum. Þitt orð er sannleikur.
18
Ég hef sent þá í heiminn, eins og þú sendir mig í heiminn.
19
Ég helga mig fyrir þá svo að þeir séu einnig helgaðir í sannleika.
20
Ég bið ekki einungis fyrir þessum heldur og fyrir þeim sem á mig trúa fyrir orð þeirra,
21
að allir séu þeir eitt, eins og þú, faðir, ert í mér og ég í þér, svo séu þeir einnig í okkur til þess að heimurinn trúi að þú hafir sent mig.
22
Og ég hef gefið þeim þá dýrð sem þú gafst mér svo að þeir séu eitt, eins og við erum eitt,
23
ég í þeim og þú í mér svo að þeir verði fullkomlega eitt til þess að heimurinn viti að þú hefur sent mig og að þú hefur elskað þá, eins og þú hefur elskað mig.
24
Faðir, ég vil að þeir sem þú gafst mér séu hjá mér, þar sem ég er, svo að þeir sjái dýrð mína, sem þú hefur gefið mér, af því að þú elskaðir mig fyrir grundvöllun heims.
25
Réttláti faðir, heimurinn þekkir þig ekki en ég þekki þig, og þessir vita að þú sendir mig.
26
Ég hef kunngjört þeim nafn þitt og mun kunngjöra svo að kærleikur þinn, sem þú hefur auðsýnt mér, sé í þeim og ég sé í þeim.“
← Chapter 16
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 18 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21